Fimmtudagur 16. október
Fasteignaleitin
Skráð 13. okt. 2025
Deila eign
Deila

Háaleitisbraut 103

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
159.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
96.500.000 kr.
Fermetraverð
605.775 kr./m2
Fasteignamat
82.850.000 kr.
Brunabótamat
67.440.000 kr.
BH
Baldína Hilda Ólafsdóttir
Tengiliður seljanda
Byggt 1964
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
F2015087
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer íbúðar
103
Svalir
Inngangur
Sameiginlegur

Vel skipulögð og endurnýjuð 159,3fm endaíbúð á 2. h. á eftirsóttum stað í hverfi 108. Eigninni fylgir 23,5fm bílskúr m. millilofti. Mjög barnvænt og öruggt umhverfi innarlega í botnlanga.

 

Nýtt fasteignamat 2026 er 91.750.000 kr.

 

Mikið endurnýjuð (2025) endaíbúð með tvennum svölum,  íbúð og gluggar ný málaðir, nýtt harðparket og  ný gólfhitalögn í öllum herbergjum. Hitastýring er sjálfstæð fyrir íbúðina og nýr þrýstijafnari á hæðinni. Ný rafmagnstafla og nýir tenglar og nýir rofar. Ný eldhúsinnrétting. Hægt er að breyta skipulagi í íbúðinni á auðveldan hátt og fjölga herbergjum í 5 svefnherbergi eða fækka og stækka stofuna.  

 

Umhverfið  er fallegt og rúmt til allra átta.  Stór sameiginleg lóð  með leiksvæði að framan og aftan við blokkina í fallegu umhverfi trjáa. Útsýni er yfir stóran hluta höfuðborgarsvæðisins, út á sund og til fjalla bæði í SV,V,N og NA. Mjög stutt er í fjölbreytta þjónustu á 108 svæðinu og gott aðgengi að stofnbrautum.

 

Eignin skiptist í :Anddyri, eldhús, sér þvottahús (herbergi) og litla geymslu/búr, borðstofu og samliggjandi stofu, 4 svefnherbergi og baðherbergi.  Engar innihurðir eru í íbúðinni og öll dyraop eru tilbúin fyrir uppsetningu. Getum útvegað verktaka til að setja upp hurðir ef þess er óskað.

 

Anddyri: Er rúmgott og opið með fataskáp.

Eldhús: Ný eldhúsinnrétting, nýr vaskur og nýtt blöndunartæki. Helluborð og ofn.

Þvottahús (herbergi): Inn af eldhúsi og lítil geymsla/búr.

Stofa og borðstofa: Rúmgóðar og bjartar, gengið er úr stofu á nýmálaðar svalir.

Svefnherbergisgangur:  Gengið út á svalir.

#1 Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum eldri fataskáp.

#2 Barnaherbergi: Bjart og rúmgott.

#3/4 Barnaherbergi: Sameinuð í eitt, bjart og rúmgott.

Baðherbergi: Flísalagt, gólfhiti, ný baðskápseining með vaski og blöndunartæki, nýlegt klósett og góð sturta.  Pláss fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymslur:  Sérgeymsla í kjallara 5,3 fm., innbyggður geymsluskápur á stigapalli við inngang sem tilheyrir íbúðinni,  með fataslá og hillum til lofts. Læsing á skápum. Hjólageymsla í sameign í kjallara.

Bílastæði: Stæði eru fyrir framan inngang og einnig fyrir framan bílskúr.

Bílskúr : Hiti, rafmagn og kalt vatn. Geymsluloft yfir hluta bílskúrs. 

Gluggar: Gluggakarmar nýmálaðir en matsatriði er hvort komið sé að glerskiptum.

Raflagnir: Nýir rofar og tenglar í íbúð. Ný rafmagnstafla með lekaliða. Allt rafmagn yfirfarið. 

Sameign: Nýtlegt dren lagt um blokkina (2023).  Hitalögn í stétt. Ástand blokkar í góðu lagi samkvæmt upplýsingum frá húsfélaginu.

 

Mjög góð eign á góðum stað. Hagstætt verð, aðeins 605.775 kr/fm.

Leikskólar grunnskólar og framhaldsskólar í göngufæri.

 

Þrívíddarmynd: Á meðfylgjandi hlekk er að finna þrívíddarmyndir af íbúð og bílskúr áður en framkvæmdum lauk. Hægt að smella á tákn á útihurð til að sjá bílskúr. Nákvæm mál íbúðar koma í ljós ef smellt er á “reglustiku” neðst á 3D mynd. https://my.matterport.com/show/?m=K1Qn1XRKMAC

 

Bókið skoðun í síma 896 4224

Nánari upplýsingar veitir: Agnar Kofoed-Hansen, fjármálaráðgjafi, S:8964224, agnarkh@gmail.com

 

Fasteignasalar geta nýtt sér kerfi e-fasteigna án áskriftargjalds í sinni daglegu vinnu og þ.m.t við kauptilboðsgerð.  Kerfið er fullbúið sölu- og skjalakerfi fyrir fasteignasala, með öllum nauðsynlegum tengingum til að auglýsa eignir, sækja og útbúa nauðsynleg skjöl og sinna öðrum mikilvægum verkefnum. 

 Sækja um aðgang – án skuldbindinga. Athugið: Ef þú ert sjálfstætt starfandi, skráðu þitt nafn og kennitölu sem umsækjanda.

Frágangur skjala verður í höndum óháðs aðila, löggilts fasteignasala eða lögmanns

 

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grensásvegur 1E
Opið hús:19. okt. kl 14:00-14:30
G1 97,9.jpg
Skoða eignina Grensásvegur 1E
Grensásvegur 1E
108 Reykjavík
108 m2
Fjölbýlishús
322
906 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Sogavegur 75
Bílastæði
Skoða eignina Sogavegur 75
Sogavegur 75
108 Reykjavík
126.4 m2
Fjölbýlishús
413
790 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Espigerði 2
Skoða eignina Espigerði 2
Espigerði 2
108 Reykjavík
134.4 m2
Fjölbýlishús
513
684 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1E
_6__6044.jpg
Skoða eignina Grensásvegur 1E
Grensásvegur 1E
108 Reykjavík
108 m2
Fjölbýlishús
322
906 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin