Miklaborg kynnir: Vesturvin 2 er glæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun á frábærum útsýnisstað í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið er staðsett örstutt frá verslun og þjónustu og í 10-15 mín. göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur.
Pantið einkaskoðun: Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali sími: 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Íbúð 605 er 4ra herbergja íbúð á 6. hæð með glæsilegu sjávarútsýni og yfir til Snæfellsness. Íbúðinni fylgir stæði í bílgeymslu. Sjónvarpsstofa er skilin af frá stofu með millivegg og í íbúðinni er stórt eldhús með eldunareyju. Frá stofu er útgengt á rúmlega 20 m2 svalir sem snúa í norðvestur sem eru með óviðjafnanlegu sjávarútsýni. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og er hjónasvíta með sér baðherbergi þar sem er sturta og einngi tæplega 10 m2 fataherbergi. Frá hjónasvítu er útgengt á um 20m2 þaksvalir sem snúa í suðaustur og þar er hægt að koma fyrir heitum potti. Annað baðherbergi er stutt frá anddyri með sturtu og einnig er sér þvottaherbergi í íbúðinni. íbúðin er 164,1m² með 17 m² geymslu sem er merkt nr. 46 og stæði í bílgeymslu merkt nr. B-06 Íbúðin er með hágæða ítölskum innréttingum frá Cassina en Sær er þema þessarar íbúðar sem betur má kynna sér á vefsíðu Vesturvin Vönduð tæki frá Miele og Siemens. Steinborðplötur og gólfsíðir gluggar. Allar íbúðir eru með gólfhita.
Nánar um verkefnið hér á heimasíðu þess HÉR.
Nánari upplýsingar veitir: Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 85,6 | 78,9 | ||
105 | 83,7 | 69,7 | ||
105 | 33 | 37,9 | ||
105 | 105,5 | 94,9 | ||
101 | 106,2 | 94,9 | ||
230 | 174,6 | 104,8 |