Miðvikudagur 3. júní
Fasteignaleitin
Opið hús:07. júní kl 13:00-14:00
Skráð 3. júní 2026

Eirhöfði 7A íb.501

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
190.7 m2
5 Herb.
Verð
223.000.000 kr.
Fermetraverð
1.169.376 kr./m2
Fasteignamat
136.600.000 kr.
Brunabótamat
115.300.000 kr.
Garður
Bílskúr
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534547
Landnúmer
233296
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Elka Guðmundsdóttir lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna glæsilegar nýbyggingar við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða – einstakt tækifæri til að eignast heimili í einu metnaðarfyllsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur.
Ártúnshöfði stendur á tímamótum. Þar er að rísa nýr og spennandi borgarhluti þar sem nútímaleg byggð, fallegt borgarumhverfi og framúrskarandi samgöngur mynda grunn að eftirsóttu framtíðarhverfi.
Eirhöfði 7 er hluti af þessari umbreytingu og býður upp á fjölbreytt úrval vandaðra íbúða þar sem hönnun, gæði og staðsetning fara saman.  Heimasíða verkefnisins - smella hér. 
Við Eirhöfða 7 býðst kaupendum að nýta sér UMBRA20 fjármögnunarleiðina, sem getur auðveldað leiðina að eigin húsnæði með aðeins 10% útborgun. Nánari upplýsingar má finna á UMBRA20
Íbúð 0501 er einstök og glæsileg 5 herbergja þakíbúð á 5. hæð, samtals 190,7 fm að stærð, þar af er íbúðin 181,8 fm og sérgeymsla 8,9 fm. Íbúðin skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur, eldhús, borðstofu, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús og anddyri. Eigninni fylgir sér bílskúr í lokaðri bílageymslu ásamt sérmerktu bílastæði og sérgeymslu.
Íbúðin skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur, eldhús, borðstofu, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús og anddyri.
Við hönnun íbúðarinnar hefur verið lögð sérstök áhersla á rými, birtu og tengingu við stórkostlegt útsýni. Meginalrými íbúðarinnar er einstaklega glæsilegt þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda opið og bjart samkomurými með stórum gluggaflötum sem ramma inn útsýnið til borgarinnar, Esjunnar, Snæfellsjökuls og víðar. Að auki er önnur stofa sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, hvort sem er sem sjónvarpsstofa eða vinnurými.
Svefnherbergin eru þrjú talsins og eru öll rúmgóð. Hjónaherbergið er sérlega glæsilegt með góðu skápaplássi og nálægð við baðherbergi íbúðarinnar. Gestasnyrting er staðsett við anddyri.
Einn af helstu kostum íbúðarinnar eru stórar um 58 fm þaksvalir sem skapa einstaka útivistarupplifun og bjóða upp á stórbrotið útsýni í margar áttir. Að auki eru 5,5 fm svalir út frá íbúðinni sem auka enn frekar tengingu við umhverfið. Þaksvæðið býður upp á einstakt rými fyrir útiborð, setusvæði og samveru undir beru lofti.
Innréttingar eru í dökkri eik frá Voké-III og setja hlýlegan og fágaðan svip á íbúðina. Quartz borðplötur, Miele heimilistæki og GROHE blöndunartæki. Baðherbergi eru flísalögð og vélræn loftræsting tryggir aukin þægindi og heilnæmt inniloft.

Húsin standa á Hamrinum, einum hæsta og glæsilegasta stað Ártúnshöfða, með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi náttúru. Hér njóta íbúar bæði nálægðar við borgarlífið og einstakrar tengingar við útivistarsvæði Elliðaárdals, strandstíga og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir.
Við hönnun verkefnisins hefur verið lögð sérstök áhersla á nútímalegan arkitektúr, vandaðan frágang og vel skipulagðar íbúðir sem henta jafnt einstaklingum, pörum og fjölskyldum. Sameiginleg svæði eru hönnuð með þægindi og samfélag í huga og undir húsunum er bílakjallari með góðu aðgengi að íbúðum.

Íbúðirnar einkennast af björtu og opnu skipulagi, stórum gluggaflötum og vönduðum efnisvali. Sérsmíðaðar innréttingar, gæða heimilistæki og nútímalegar lausnir.
Á næstu árum mun Ártúnshöfði þróast í eftirsótt íbúðasvæði með verslun, þjónustu, veitingastöðum, almenningssamgöngum og fjölbreyttu mannlífi í göngufæri. Hér gefst einstakt tækifæri til að kaupa í framtíðarsvæði Reykjavíkur á meðan uppbyggingin er rétt að hefjast.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
29.3 m2
Fasteignanúmer
2534547
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
-1
Númer eignar
50
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.980.000 kr.
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2534547
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B
Númer eignar
08
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.920.000 kr.
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hamraborg 14
Opið hús:04. júní kl 18:00-18:30
Skoða eignina Hamraborg 14
Hamraborg 14
200 Kópavogur
122.8 m2
Fjölbýlishús
514
691 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Reykjastræti 7
Bílastæði
Skoða eignina Reykjastræti 7
Reykjastræti 7
101 Reykjavík
129.5 m2
Fjölbýlishús
211
1228 þ.kr./m2
159.000.000 kr.
Skoða eignina Höfði 20
Skoða eignina Höfði 20
Höfði 20
640 Húsavík
82.1 m2
Fjölbýlishús
312
431 þ.kr./m2
35.400.000 kr.
Skoða eignina Flétturimi 11
Bílskúr
Skoða eignina Flétturimi 11
Flétturimi 11
112 Reykjavík
108.9 m2
Fjölbýlishús
311
734 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin