Hannes Steindórsson kynnir með stolti:
Penthouse enda íbúð á fimmtu og efstu hæð með 41 fm hellulögðum og timburklæddum þaksvölum, einstöku útsýni og bílastæði í upphituðum bílakjallara.
-Stórt alrými, útgengt út á þaksvalir úr stofu og svefnherbergi.
-Aukin lofthæð.
-Sér þvottahús í íbúð.
-Hús klætt að utan og með áltré gluggum(viðhaldslítið).Húsið er á reit þar sem eru almennar íbúðir, þjónustuíbúðir, hjúkrunarheimili og þjónustumiðstöð aldraða. Skipulag hverfisins myndar þannig kjarna í kringum hjúkrunaríbúðir og þjónustumiðstöð aldraða á vegum Kópavogsbæjar og Hrafnistu DAS.Í næsta nágrenni félagsmiðstöðin Boðinn þar sem hægt er að sækja tómstundir, mötuneyti, sundlaug og aðra þjónustu fyrir eldri borgara.Eignin er laus við kaupsamning. Forstofa: Parketlögð forstofa með skápum.
Stofa/borðstofa: Opnar og bjartar, mikið af gluggum, fallegt og mikið útsýni. Útgengt út á þaksvalir.
Eldhús: Viðar innrétting með efri og neðri skápum.
Svefnherbergi: Rúmgott 14 fm svefnherbergi með fataskápum. Útgengt er út á þaksvalir úr herbergi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með innréttingu, stórri sturtu með glerskilrúmi ásamt handklæðaofni.
Þvottahús: Sér þvottahús í íbúð með vinnuborði ásamt innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign (8,5 fm.)
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í upphituðum bílakjallara, merkt B12.
Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson s.699-5008 hannes@fastlind.is