Föstudagur 19. desember
Fasteignaleitin
Skráð 26. nóv. 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
120 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
31.900.000 kr.
Fermetraverð
265.833 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Þvottahús
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
8254922
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Stórar suður svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *VEL SKIPULÖGÐ 4RA HERB. ENDAÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ Í LYFTUHÚSNÆÐI Á LAS RAMBLAS GOLFVELLINUM* *STÓRAR SUÐURSVALIR* *STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU* *AFHENDIST MEÐ HÚSGÖGNUM*

Hér er tækifæri til að eignast frábæra eign með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum á Las Ramblas golf fyrir aðeins 31.900.000 ISK! Rúmgóð og vel skipulögð eign með stórum suðursvölum á hinum vinsæla Las Ramblas golfvelli, um 50 mín akstur suður af Alicante. Eignin er á einni hæð, og með sameiginlegum sundlaugargarði. Stæði í bílageymslu og sérgeymsla.

Allar upplýsingar gefur:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, Sími 0034 615 112 869, berta@spanareignir.is


Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu björtu rými, með góðu útgengi út á stórar svalir sem snúa í suður. Eldhús er mjög rúmgott, og frá eldhúsi er gengið í þvottahús/geymslu. Einnig er önnur geymsla í bílakjallara. Svefnherbergi eru þrjú, öll með fataskápum. Tvö baðherbergi, og annað þeirra er inn af stærsta svefnherberginu. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu og sér geymsla.
Eignin er vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á Las Ramblas Golfvellinum. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romera, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 5 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Gott úrval verslana og veitingastaða er í næsta nágrenni, auk þess er stutt í heilsugæslu, tennisvöll, fótboltavöll, crazy golf ofl. Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Verð: 219.995 Evrur. (ISK 31.900.000,- miðað við gengi 1E=145ISK)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

LAS RAMBLAS GOLFVÖLLURINN
Þennan golfvöll þurfa allir alvörugolfarar að prófa amk. einu sinni um ævina. Þessi golfvöllur er ekki allra, annað hvort hatar þú völlinn eða elskar hann. Allavega er þetta golfvöllurinn fyrir golfara sem vilja taka áhættur, en geta líka valið auðveldari leiðir.
Völlurinn var opnaður árið 1991, hannaður af Pepe Gancedo. Hann er ca. 5.800 metra langur og par 72. Hönnun vallarins er sérlega skemmtileg, holurnar fjölbreyttar og bjóða upp á ýmis erfiðleikastig.
Þennan golfvöll er bæði hægt að fara á golfbíl eða ganga hringinn, sem skapar fjölbreytni í upplifun.
Las Ramblas golfvöllurinn þykir einstaklega fallegur, með mikla náttúru og grænan gróður. Tré og gil eru stundum fyrir golfaranum, en þegar maður sigrast á vellinum skapar það tilfinninguna um að langa  að koma strax aftur.
En eitt er víst, að ef þú hefur einu sinni spilað Las Ramblas er það völlur sem þú manst alltaf eftir.

Eiginleikar: útsýni, air con, sundlaug, suður svalir, stæði í bílageymslu, golf, endursölueign,
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas Golf, La Fuente,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
8254922

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR -San Miguel De Salinas
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR -San Miguel De Salinas
Spánn - Costa Blanca
100 m2
Fjölbýlishús
322
317 þ.kr./m2
31.700.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas
Bílskúr
SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas
Spánn - Costa Blanca
130 m2
Fjölbýlishús
321
235 þ.kr./m2
30.500.000 kr.
Skoða eignina Sumareignir Vistabella 1
Sumareignir Vistabella 1
Spánn - Costa Blanca
80 m2
Hæð
322
411 þ.kr./m2
32.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Pilar de la Horadada
SPÁNAREIGNIR - Pilar de la Horadada
Spánn - Costa Blanca
91 m2
Hæð
322
348 þ.kr./m2
31.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin