Miðvikudagur 12. mars
Fasteignaleitin
Skráð 8. mars 2025
Deila eign
Deila

Nönnugata 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
79.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
883.692 kr./m2
Fasteignamat
63.400.000 kr.
Brunabótamat
39.500.000 kr.
Mynd af Óskar Már Alfreðsson
Óskar Már Alfreðsson
Byggt 1928
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2007622
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
2020 vatnslagnir endurnýjaðar í eldhúsi og baðiog ofnar endurnýjaðir
Raflagnir
2020 endurnýjað að hluta í eldhúsi, baði, stofu. Skipt var um tengla og rofa í íbúðinni.
Frárennslislagnir
2020 skólplögn fóðruð /sokkur dreginn í lögnina frá húsi út í götu
Gluggar / Gler
Upprunalegt/Endurnýjað að hluta
Þak
Ekki vitað en var yfirfarið árið 2018 og allt lagða sem þurfti að laga
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sérafnotaflötur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Prima fasteignasala kynnir í sölu  íbúð með sérinngang við Nönnugötu 1, 101 Reykjavík. Um er að ræða eign á fyrstu hæð á góðum stað í miðbæ Reykjavíkur. Húsinu hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin og hefur íbúðin verið töluvert endurnýjuð á undanförnum árum.

Skoðannir bókist á oskar@primafasteignir.is 

Nánari lýsing á eigninni
Sérinngangur 
er í eignina á austurhlið hússins. Þar er timburverönd sem tilheyrir eigninni.
Forstofa er flísalögð með innbyggðum hyrslum.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum. Innrétting og sturta, wc og hanklæðaofn.
Eldhús er rúmgott með ljósri innréttingu. Uppþvottavél og ísskápur fylgja.
Stofa er björt og rúmgóð.
Hjónaherbergi er rúmgott.
Svefnherbergi.
Geymsla er sér í sameign.
Sameiginlegt þvottaherbergi með útgengi á baklóð.

Þetta er eign á frábærum stað þar sem stutt er í alla þjónustu og ýmsar skemmtilegar gönguleiðir um miðbæ Reykjavíkur. Sannkölluð perla í miðbænum.

Að sögn seljanda hafa eftirfarandi endurnýjungar átt sér stað á undanförnum árum:
Árið 2018 

Þak var yfirfarið og skipt um allt það efni sem þurfti að endurnýja og laga.
Skólplögn var fóðruð/sokkur dreginn í alla lögnina frá húsi og út í götu.
Meðfram austurhlið hússins var settur viðarpallur.
Árið 2020 
Var nýtt eldhús innréttað ásamt baðherberg. Öll gólfefni endurnýjuð, raflagnir voru endurnýjaðar í eldhúsi, baði og stofu. Skipt var um alla tengla og rofa í íbúðinni, vatnslagnir voru endurnýjaðar í eldhúsi og baði og ofnar endurnýjaðir.

Eignin Nönnugata 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-7622, birt stærð 79.1 fm.

Nánari upplýsingar veitir.
Óskar Már Alfreðsson löggiltur fasteignasali / s.6158200 / oskar@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/12/202042.700.000 kr.47.000.000 kr.79.1 m2594.184 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vitastígur 9
Skoða eignina Vitastígur 9
Vitastígur 9
101 Reykjavík
62.6 m2
Fjölbýlishús
211
1165 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Skúlagata 42
Bílskúr
Skoða eignina Skúlagata 42
Skúlagata 42
101 Reykjavík
77.8 m2
Fjölbýlishús
312
919 þ.kr./m2
71.500.000 kr.
Skoða eignina Ljósvallagata 30
OPIÐ HÚS
Ljósvallagata 30
101 Reykjavík
68.1 m2
Fjölbýlishús
312
1026 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
64 m2
Fjölbýlishús
211
1139 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin