Laugardagur 7. nóvember
Fasteignaleitin
Opið hús:10. nóv. kl 16:45-17:30
Skráð 6. nóv. 2026

Framnesvegur 23

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
128.2 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
110.000.000 kr.
Fermetraverð
858.034 kr./m2
Brunabótamat
73.700.000 kr.
Byggt 2003
3. hæð · efsta
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22628451
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sameiginlegur

Opið hús þriðjudaginn 10.nóvember frá kl 16:45 til 17:30 - Framnesvegur 23, 101 Reykjavík - íbúð 0301

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 


Falleg, björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í þriggja íbúða húsi á rólegum og eftirsóttum stað í gamla Vesturbænum.
Íbúðin er á efstu hæð með fallegu útsýni af rúmgóðum suðvestur svölum. 
Eingöngu þrjár íbúðir eru í húsinu og er stigagangur rúmgóður og á neðstu hæð er hjólageymsla og geymsla. 


Um er að ræða einstaklega fallega eign með þremur svefnherbergjum, ný uppgerðu baðherbergi og þvottahúsi innan íbúðar. Gegnheilt nýpússað parket er á allri íbúðinni. Eldhús og allar hurðar í íbúðinni voru filmaðar í fallega gráum lit og nýjar höldur settar á eldhús. Frábært útsýni er úr rúmgóðri stofunni og vísa gluggar í suður, vestur og norður yfir litríka húsadýrð Vesturbæjarins.

Eignin er skráð 128fm (þar af geymsla 7.9 fm)

Lýsing eignar:
Forstofa/Hol: Komið er inn í forstofu/hol sem tengir saman rými íbúðarinnar, gegnheilt parket og vegginnfellt fatahengi. 
Eldhús: Rúmgott eldhús sem er opið við stofur, grá viðarinnrétting með granítborðplötu og mjög gott skápa og vinnupláss. Eldunareyja er með borðkrók og hærri skáp sem skermir af eldhús frá stofum að hluta. Gluggar í eldhúsi með frábæru útsýni yfir gamla vesturbæinn. 
Herbergi 1: Mjög rúmgott hjónaherbergi með fataskápum. Parket á gólfi. Hjónaherbergi er við hliðina á baðherbergi og nýtur næðis frá öðrum herbergjum í húsinu. Hjónaherbergið vísar út á Framnesveg með góðum gluggum. 
Herbergi 2: Gott herbergi með innfelldum fataskápum. Parket á gólfi 
Herbergi 3: Gott herbergi með parket á gólfi. 
Baðherbergi: Fallega grænar „subway“ flísar á baðherbergi sem var endurnýjað fyrir fáeinum árum síðan. Flísar á veggjum og gólfi og upphengt salerni. Baðkar með flísalagðri hlið og gleri áfast við baðkarsbrún. Hvít innrétting með tvöföldum vaski og speglaskáp ofan við vask. 
Þvottahús: Er innan íbúðar. Flísar á gólfi, tengi fyrir tvær vélar (þvottavél og þurrkara). Vegghillur og vaskur. 
Stofa: Rúmgóð stofa sem tengir við eldhús og hol. Gluggar vísa í suður, vestur og gluggar úr eldhúsi vísa í norður. Rúmgóðar svalir eru með aðgengi út frá stofu með tvöfaldri hurð.

Íbúðinni fylgir sérgeymsla á jarðhæð hússins (7,9 fm).

Vönduð og vel staðsett íbúð - stutt í alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við miðborgina og Grandann. 

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Híbýli
http://www.hibyli.is

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fálkahlíð 5 (511)
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:08. nóv. kl 15:00-15:30
Fálkahlíð 5 (511)
102 Reykjavík
107,5 m2
Fjölbýlishús
312
1022 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 143 301
Laugavegur 143 301
105 Reykjavík
108,3 m2
Fjölbýlishús
413
886 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Brákarbraut 10
Efsta hæð
Skoða eignina Brákarbraut 10
Brákarbraut 10
310 Borgarnes
123,8 m2
Fjölbýlishús
413
524 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hrafnaklettur 4
Efsta hæð
Opið hús:12. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hrafnaklettur 4
Hrafnaklettur 4
310 Borgarnes
106,3 m2
Fjölbýlishús
413
437 þ.kr./m2
46.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin