Þriðjudagur 22. september
Fasteignaleitin
Skráð 22. sept. 2026

SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
311 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
97.150.000 kr.
Fermetraverð
312.379 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Hleðslustöð
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
104_220926
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd og þaksvalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ ÁSAMT KJALLARA – FLOTT RESORT* *STÓR ENDALÓÐ*

Vönduð og falleg einbýlishús á frábærum stað í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm., SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT. Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm. Þar er frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Á svæðinu er einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jogasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn er glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares. Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia. Frábært tækifæri til að eignast glænýtt og fallegt einbýlishús á góðum stað í sólinni. Dásamleg fjölskylduparadís.

Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is.  00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034  0034 615112869.

Nánari lýsing:

Húsið er sérlega vel skipulagt og rúmgott. Stór stofa, borðstofa og eldhús í björtu og opnu rými. Þrjú rúmgóð svefnherbergi og þrjú baðherbergi, eitt þeirra en-suite. Í öllum svefnherbergjum eru innbyggðir skápar og í hjónasvítu er sérlega gott skápapláss. Stór verönd og sér garður. Úti og innirými eru vel tengd og mynda skemmtilega heild. Rúmlega 100 fm þaksvalir með aðstöðu til að njóta sólar og samveru allt árið um kring.

Í kjallara er stórt opið rými, ca. 92 fm, sem hægt er að nýta og innrétta á ýmsa vegu, s.s. sem aukasvefnherbergi, vinnuaðstöðu eða tómstundarrými. "English Patio" fyrir birtu og loftun. 

Góður garður með einkasundlaug og sólbaðsaðstöðu. Frábær aðstaða til að grilla og njóta lífsins með fjölskyldu og vinum. Bílastæði inni á lokaðri lóð og hleðslustöð fyrir rafbíl. Lagnir fyrir sólarsellur (tvær sólarsellur fylgja).

Lóð 265 fm
Hús 114 fm
Kjallari 92 fm
Þaksvalir 103 fm

Um er að ræða aðeins eitt endahús á einni hæð, staðsett í lengju af 6 húsum. Hin 5 eru á 2 hæðum, á misstórum lóðum. 

Örstutt göngufæri er að Santa Rosalia stöðuvatninu með frábærri sólbaðsaðstöðu, ströndum, og möguleika á ýmsum skemmtilegum vatnaíþróttum. Þar er líka frábær aðstaða fyrir ævintýragolf, tennis, körfubolta ofl. Frábær veitingaaðstaða í nýja klúbbhúsinu við vatnið, líkamsrækt ofl.

Ca. 15 mín. tekur að hjóla niður á á skemmtilegu göngugötuna í Los Alcazares, sem liggur niður á fallega sandströnd. Fjöldi verslana og veitingastaða eru þar á svæðinu. Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf. Fjölmargir vinsælir og skemmtilegir golfvellir eru í næsta nágrenni og hinn vinsæli Mar Menor er í göngufæri frá Santa Rosalia svæðinu.

Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK.
Verð 670.000 Evrur  (97.150.000 ISK) + skattur 10% og ca. 3% kostn. við kaupin. 
Afhending í apríl 2028.

Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandað og fallegt einbýlishús með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni. Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld. Að meðaltali eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, kjallari, golf,
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
104_220926

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fjóluás 30
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Fjóluás 30
Fjóluás 30
221 Hafnarfjörður
300.4 m2
Einbýlishús
627
679 þ.kr./m2
204.000.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Bílastæði
Hleðslustöð
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Spánn - Costa Blanca
228 m2
Einbýlishús
433
350 þ.kr./m2
79.750.000 kr.
Skoða eignina Erluás 31
Bílskúr
Skoða eignina Erluás 31
Erluás 31
221 Hafnarfjörður
284.2 m2
Einbýlishús
735
1038 þ.kr./m2
295.000.000 kr.
Skoða eignina Grímshagi 8
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Grímshagi 8
Grímshagi 8
107 Reykjavík
286 m2
Einbýlishús
845
1154 þ.kr./m2
330.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin