
*** SÖLUSÝNING: BOLLAGARÐAR 51, MIÐVIKUDAGINN 22. APRÍL 2026 KL 18:00-18:30. ÁSDÍS ÓSK VALSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 8630402 EÐA EMAIL: ASDIS@HUSASKJOL.IS ***
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Bollagarðar 51.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.
Rúmgott og skemmtilegt raðhús við Bollagarða 51 á Seltjarnarnesi. Þetta er 212 fm raðhús á tveimur hæðum, fjórum svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og með stóru leikrými í risi sem tengist við annað barnaherbergið með sérstiga. Stór pallur út af stofu sem snýr í suður. Þetta er virkilega skemmtilega hönnuð eign fyrir fjölskyldufólk í einu vinsælasta hverfi höfuðborgarsvæðisins.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNAMYNDBAND AF BOLLAGÖRÐUM 51
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA 3D SÝNINGU AF EIGNINNI
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR
Nánari lýsing á neðri hæð:
Forstofa: Flísalögð forstofa með góðum loftháum skáp. Rafhitun í gólfi.
Stofa: Opin og rúmgóð stofa með góðu borðstofuplássi. Harðparket á gólfi. Úr stofu er útgengt út á rúman, skjólgóðan pall til suðurs.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting, helluborð, bakarofn og innbyggð uppvöskunarvél voru endurnýjuð árið 2018. Helluborðið er 90cm span helluborð og ofninn er sjálfhreinsandi blástursofn (pýralískur). Tækin eru frá Bosh og innréttingin er frá IKEA. Flísar á gólfi. Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Flísar á milli skápa.
Gestabaðherbergi: Niður af aðalrýminu er gesta snyrting sem er flísalögð, með rafhita í gólfi, upphengdu salerni og skáp undir vaski.
Þvottahús/bílskúr: Gengið úr forstofu í sambyggðan bílskúr sem innréttaður hefur verið sem rúmgott þvottahús með innréttingum annars vegar og geymslu- og vinnurými hins vegar. Rennihurð skilur rýmin að. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Nánari lýsing á efri hæð:
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum og mikilli lofthæð. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi I: Gott herbergi með skápum, svefnlofti. Harðparket á gólfi. Stigi úr herbergi upp í stórt rými í risi sem er frábært leikherbergi.
Barnaherbergi II: Gott herbergi með skápum, svefnlofti. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi III: Minnsta herbergið, nýtt sem skrifstofa. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, upphengdu salerni, rúmgóðri flísalagðri sturtu með glerþili og handklæðaofni.
Sjónvarpshol: Á annarri hæð er einnig sjónvarpshol með mikilli lofthæð. Úr sjónvarpsholi er gengið upp stiga í tvískipt rými í risi með þakgluggum og góðri lofthæð.
Ris: Rýmið er í dag nýtt sem tómstundarherbergi og líkamsrækt. Í innra rými háaloftsins er vaskur og bæði heitt og kalt vatn en rýmið var upphaflega hannað sem þvottahús. Undir súð á háalofti er einnig lítið geymslurými.
Framkvæmdir:
Gólfefni voru endurnýjuð árið 2021 en á fyrstu og annarri hæð er harðparket frá Parka. Gólfefni eru án þröskulda, nema milli forstofu og baðherbergja. Flísar í forstofu og eldhúsi voru endurnýjaðar 2018. Rafmagnstafla var endurnýjuð 2018, nýtt rafmagn var lagt í eldhús og þvottahús og rafmagn í húsinu yfirfarið. Þá var jafnframt skipt um rafmagnsefni, þ.e. slökkvara og innstungur. Varmaskiptar fyrir bæði neysluvatn og miðstöðvarkerfi voru endurnýjaðir árið 2018. Húsið var málað 2017.
Tvö bílastæði eru fyrir framan eignina og nokkur gestastæði eru í sameiginlegum botnlanga. Bílastæði sem fylgja eru hellulögð og hiti er í plani.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 18/12/2017 | 58.150.000 kr. | 81.000.000 kr. | 212.5 m2 | 381.176 kr. | Já |
| 06/08/2015 | 54.100.000 kr. | 53.000.000 kr. | 212.5 m2 | 249.411 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
210 | 245,8 | 158,9 | ||
170 | 95,2 | 65 | ||
109 | 219,2 | 116,9 | ||
170 | 72,9 | 64,9 | ||
109 | 231,3 | 145 | ||
800 | 80 | 59,9 |