Föstudagur 9. maí
Fasteignaleitin
Skráð 6. maí 2025
Deila eign
Deila

Heiðarbrún 7

EinbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
170.5 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
615.249 kr./m2
Fasteignamat
77.500.000 kr.
Brunabótamat
75.850.000 kr.
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1969
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2088636
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ofnalagnir endurnýjaðar, neysluvantslagnir eru upprunalegar skv. seljanda
Raflagnir
Endurnýjað skv. seljanda
Frárennslislagnir
Upprunalegar. Skólp er úr plasti skv. seljanda
Gluggar / Gler
Upprunalegir. Endurnýjað gler að hluta til
Þak
Bárujárn endurnýjað. Þakkantur upprunalegur skv. seljanda
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallur
Upphitun
Gólfhitakerfi að mestu. Ofn í þvottahúsi og bílskúr
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Útihurðir eru upprunalegar með gulu gleri, en ný glær gler hafa verið keypt og fylgja þau með. Lausar flísar við baðkar, þarfnast nánari skoðun kaupanda. Stærra baðherbergið er upprunalegt með baðkari, en eigendur hafa undirbúið endurnýjun þess. Við sölu mun fylgja ný innrétting, vaskur, blöndunartæki fyrir vask, spegill, steyptur sturtubotn og flísar fyrir sturtusvæði.Sjá nánar í ástandsyfirlýsingu seljenda.
Eignin getur verið laus með stuttum fyrirvara.

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Heiðarbrún 7, 230 Reykjanesbær

Bjart og vel skipulagt fimm herbergja einbýlishús með bílskúr. Að aftanverðu hússins er verönd með skjólveggjum og heitum potti. Staðsetning er vinsæl á rólegum og fjölskylduvænum stað í Keflavík.
Eignin hefur verið endurnýjuð á undanförnum árum. Eldhúsinnrétting hefur verið endurnýjuð, settur gólfhiti í öll rými nema þvottahús, auk þess sem gólfefni (parket) hefur verið endurnýjað. Þá hefur einnig verið skipt um járn á þaki og rafmagn hefur að mestu verið endurnýjað.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 170.5 m², þar af er íbúðarrými 129,0 m² og bílskúr 41,5 m². Eign merkt 01-01, fastanúmer 208-8636 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa
 er með harðparketi á gólfi.
Geymsla/kyndikompa er innaf forstofu, þar sem hitagrind er staðsett.
Gestasalerni er með flísum á gólfi, skáp, vask og salerni.
Eldhús er með hvítri innréttingu sem býður upp á gott skúffu- og skápapláss, innfelldan ísskáp og uppþvottavél. Eyja með helluborði og aðstöðu fyrir barstóla. Harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa er rúmgóð og góðri tengingu við eldhús. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskáp með rennihurðum og harðparketi á gólfi.
Þrjú svefnherbergi með harðparketi á gólfi og gengið er út á verönd frá einu herberginu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Salerni og baðkar með sturtu. Innrétting með vaski og ágætu skápaplássi.
Þvottahús er inn af eldhúsi með útgengi út á bílaplan. Í þvottahúsi er góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Þar er einnig lúga upp á loft.
Bílskúr er 41.5 m² að stærð með hita og rafmagni.
Verönd er timburklædd með skjólveggjum og heitum potti.

Framkvæmdir að sögn seljenda:
- Skipt hefur verið um bárujárn á húsi og bílskúr.
- Gólfhiti hefur verið settur í öll rými nema þvottahús; þar er ofn, eins og í bílskúrnum.
- Eldhúsinnrétting hefur verið endurnýjuð.
- Nýlegt harðparket er á gólfum í eldhúsi, stofu og herbergjum, auk nýrra innihurða.
- Raflagnir hafa verið endurnýjaðar að mestu; nýjir vírar dregnir og tenglar og rofar endurnýjaðir (að undanskildu þvottahúsi).
- Ný útidyrahurð og opnanleg fög í bílskúr hafa verið sett upp.

Nánari upplýsingar veitir Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is

Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný Real Estate Agency advises both sellers and potential buyers, who do not have Icelandic as their first language, to get the assistance of a translator when viewing and signing all necessary documents relating to buying and selling properties.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valný fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kostnaður sem kaupandi þarf að standa straum af: 
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati, 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald: 2.700 kr. á hvert skjal (kaupsamningur, veðleyfi o.fl.)
3. Lántökukostnaður: Samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Þjónustu- og umsýslugjald fasteignasölu: Samkvæmt gjaldskrá Valný fasteignasölu.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða, ber kaupanda að greiða skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er innheimt.


Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/04/202249.350.000 kr.75.500.000 kr.170.5 m2442.815 kr.
21/10/202049.700.000 kr.53.000.000 kr.170.5 m2310.850 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1965
41.5 m2
Fasteignanúmer
2088636
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.350.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurgarður 3
Bílskúr
Skoða eignina Suðurgarður 3
Suðurgarður 3
230 Reykjanesbær
172.9 m2
Einbýlishús
514
612 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Skoða eignina Vatnsholt 7c
Skoða eignina Vatnsholt 7c
Vatnsholt 7c
230 Reykjanesbær
159.9 m2
Raðhús
413
600 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Þórsvellir 4
Bílskúr
Skoða eignina Þórsvellir 4
Þórsvellir 4
230 Reykjanesbær
193.8 m2
Einbýlishús
624
577 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Birkiteigur 14
Bílskúr
Skoða eignina Birkiteigur 14
Birkiteigur 14
230 Reykjanesbær
195 m2
Einbýlishús
635
538 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin