Mánudagur 27. júlí
Fasteignaleitin
Opið hús:04. ágúst kl 15:00-17:00
Skráð 27. júlí 2026

Suðurbraut 758

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Ásbrú-262
54.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
45.000.000 kr.
Fermetraverð
828.729 kr./m2
Fasteignamat
13.050.000 kr.
Brunabótamat
15.400.000 kr.
Byggt 1956
Jarðhæð af 2
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2542365
Landnúmer
214203
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
06
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna í einkasölu 25 glæsilegar íbúðir við Suðurbraut 758 á Ásbrú í Reykjanesbæ.

Í boði eru 3ja herbergja, 2ja herbergja og studíó íbúðir. Þær eru frá 51,5 fm til 94,7 fm að stærð. Verð eru frá kr. 43.000.000 og til kr. 63.000.000. Geymsla í sameign fylgir öllum íbúðum. Næg bílastæði eru við húsið.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum. Áætlaður afhendingartími er í september 2026.

Íbúð 106 er stúdíó íbúð, 54,3 fm að stærð, þar af er geymsla 4,7 fm.
Skoða myndband

 
Byggingarlýsing:
Um  er að ræða 2ja hæða hús sem var endurbyggt í heild sinni, þar með talið burðarvirki, klæðningar, gluggar og allir innviðir, samkvæmt kröfum núgildandi byggingareglugerðar. Byggð var ný hæð á hluta byggingarinnar.
Fyrsta hæð byggingarinnar er staðsteypt á steyptum sökkli með burðarvirki úr stáli og steinsteypu. Önnur hæð er á steyptri plötu, burðarvirki er úr timbri, stálsúlum og límtrésbitum. Á neðri hæð eru steyptir burðarveggir einangraðir að utan og klæddir ál- og timburklæðningu. Á efri hæð eru veggir byggðir upp með timburgrind, einangraðir með 150 mm steinull og klæddir með ál- og timburklæðningu í samræmi við heildarútlit hússins. Klæðningin er lituð álklæðning og hitameðhöndluð viðarklæðning (Thermo Wood). Gluggar eru tré/ál með tvöföldu einangrunargleri. Svalir eru staðsteyptar, yfirbyggðar, með útilýsingu og handriði úr öryggisgleri. Þak er einangrað og klætt með tjörudúk.
Veggir eru gifsklæddir, spartlaðir og málaðir. Loft eru niðurtekin og gifsklædd í íbúðum, hljóðísogsdúkar eru á göngum sameignar.
Á gólfum er vínylparket í íbúðum og á göngum sameignar, flísar á baðherbergjum, í votrýmum og anddyri.
Innréttingar eru vandaðar, sprautulakkaðar og slitsterkar í gráum lit. Plastlagðar borðplötur í eldhúsrými. Eldhústæki, þ.e. ofn, helluborð og vifta, eru frá Electrolux.
Á baðherbergjum eru spegla- og handlaugarskápur, vegghengt salerni, sturta með glerskilrúmi og sjálfvirkum blöndunartækjum. Sameiginlegt öryggisniðurfall og niðurfall  er í sturtu. Inn á baðherbergi eru tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara.
Innihurðir eru sprautulakkaðar hvítar rennihurðir frá Byko. Millihurðir eru hvítar sprautulakkaðar frá Birgisson.
Ofnar eru í íbúðum og sameign efri hæðar, gólfhiti er í íbúðum og sameign neðri hæðar.
Vélræn loftræsting (útsog) er á baðherbergjum og í eldhúsrýmum, og lokuðum rýmum í sameign, opnanleg fög í alrýmum. Ferskloftsventill er í útvegg á íbúðum.
Ljóskúplar eru í öllum íbúðarrýmum, útilýsing og tenglar á svölum og við inngang.
 
Suðurbraut 758 stendur á íbúða- og þjónustusvæði Ásbrúar í Reykjanesbæ. Svæðið einkennist af góðri aðstöðu fyrir daglegt líf, góðu aðgengi að þjónustu, leikskóla og grunnskóla, nálægð við íþróttamannvirki, göngu- og hjólastíga, í rólegu umhverfi með góðum samgöngum og greiðri aðkomu.
Hverfið hefur á undanförnum árum tekið miklum framförum og telst nú eitt virkasta uppbyggingarsvæði bæjarins.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Sunna fasteignasala ehf.
www.sunnafast.is

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tjarnabakki 2
Hleðslustöð
Opið hús:30. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Tjarnabakki 2
Tjarnabakki 2
260 Reykjanesbær
72.2 m2
Fjölbýlishús
312
747 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Beykidalur 4
Hleðslustöð
Skoða eignina Beykidalur 4
Beykidalur 4
260 Reykjanesbær
70 m2
Fjölbýlishús
211
713 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbrún 30
Opið hús:29. júlí kl 17:15-17:45
Skoða eignina Hraunbrún 30
Hraunbrún 30
220 Hafnarfjörður
65 m2
Fjölbýlishús
212
845 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Óðinsgata 26
Efsta hæð
Opið hús:28. júlí kl 13:00-13:30
Skoða eignina Óðinsgata 26
Óðinsgata 26
101 Reykjavík
62.1 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
1045 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin