Trausti fasteignasala kynnir eignina Frostafold 32, 112 Reykjavík, Íbúð 302, birt stærð 80.5 fm.
Fasteignamat skv HMS er 61.150.000kr
Falleg íbúð á þriðju hæð í góðu fjölbýlishúsi, samanstendur af anddyri, geymsla inni í íbúð, baðherbergi, tveimur svefnherbergjum, stofu og eldhúsi. Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla fylgir eigninni.
Nánari lýsing,
Anddyri er snyrtilegt með flísum á gólfi
Eldhús er með hvítum innréttingum, borðplata úr steini, flísar á gólfi
Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, innréttingu, skáp, tengi fyrir þvottavél og þurrkara afmarkað með léttum vegg. Flísalagt í hólf og gólf
Hjónaherbergi er rúmgott með gluggum í tvær áttir, innfelldum rúmgóðum fataskáp, parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð, parket á gólfi, útgengt er á svalir sem eru flísalagðar
Herbergi er með góðum skápum og parketi á gólfi
Geymsla er inn í íbúðinni, með skúffueiningum og hillum á vegg, parket á gólfi
Hjóla og vagnageymsla er sameiginleg á fyrstu hæð
Upplýsingar um eignina
2025 voru allir bláir fletir á húsinu voru málaðir.
2025 var þakið einnig yfirfarið þegar var farið í framkvæmdirnar á gluggunum og gert var við skemmd á þakinu..
Gluggar yfirfarnir að utan og skipt um hluta af þeim, sett ál á áveðursfleti.
Tveir gluggar í íbúð endurnýjaðir að hluta og að öllu leyti, í sitthvoru svefnherberginu
2020 voru gluggar að innan voru þeir pússaðir og málaðir
2018 var teppi í stigagangi endurnýjað
2021 parket frá Birgisson
2020 tenglar og rofar endurnýjaðir
2020 -2025 var krani í vaski endurnýjaður, sturtugler sett upp, og blöndunartæki í sturtu/baði endurnýjað
Eignin er á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Grafarvogi, með stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
Nálægð við fallega náttúru, og skemmtilegar útivistarperlur.
Nánari upplýsingar veitir Elísabet Guðmundsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 822-4848, tölvupóstur elisabet@trausti.is.