Miðvikudagur 30. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 24. júlí 2025
Deila eign
Deila

Háteigur 48

Nýbygging • RaðhúsSuðurnes/Garður-250
101.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
65.900.000 kr.
Fermetraverð
646.712 kr./m2
Fasteignamat
9.050.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Páll Þorbjörnsson
Páll Þorbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2537131
Húsgerð
Raðhús
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
ALLT fasteignasala kynnir nýtt og glæsilegt 101,9m² raðhús við Háteig 48 í Garði, Suðurnesjabæ. Eignin sem er er í fjögurra íbúða raðhúsi á vinsælum stað er á  einni hæð með þremur svefnherbergjum, rúmgóðri stofu og opnu eldhúsi. Timburverönd, frágenginni lóð og steyptu bílastæði.  Eign merkt 01-04, fastanúmer 253-7131, ásamt lóðarréttindum og sameign.

Eignin er tilbúin til afhendingar.


Lýsing eignar og skipulag:
Forstofa: Flísalagt gólf.
Eldhús: Hvít innrétting með eyju spanhelluborði, blástursofni og svörtum blöndunartækjum. 
Stofa: Björt og rúmgóð með harðparketi, opið og tengt við eldhús. Úgengt er út á verönd.
Hjónaherbergi: Rúmgott með harðparketi.
Tvö barnaherbergi: Harðparket á gólfum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting með melamin-áferð, svört blöndunartæki, upphengt salerni og walk-in sturta með glerþili.
Þvottahús: Flísalagt með tengi fyrir þvottavél.
Geymsla / Tækjaherbergi: m 5 m², með sérinngangi utanfrá.
Verönd: Timburpallur um 20 m² með skjólveggjum milli íbúða.

Bygging og tæknilýsing:
Húsið er byggt úr vönduðum timbureiningum frá Eistlandi, á staðsteyptum undirstöðum.

Þak: Tvöfaldur þakpappi.
Gluggar: PVC. Hurðir: Timbur.
Gólfhiti: Með Danfoss stýringum.
Fullbúið loftræstikerfi í gluggalausum rýmum.

Nánari upplýsingar sbr skilalýsingu og teikningar veita:
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is

Halla Vilbergsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í Síma 772-7930, tölvupóstur halla@allt.is
 
Nánari lýsing eignar:
Um er að ræða innflutt timburhús frá framleiðandanum SEVE í Eistlandi. Húsið er raðhús með 4 íbúðum. Stærð íbúða er annars vegar 101,9 og hins vegar 82,1 fm. Húsið er reist á staðsteyptum sökkli. Húsið stendur á 1.320 fm lóð. Stærð sérnotaflata einstakra íbúða sbr. uppdrætti aðalhönnuðar og eignaskiptalýsingu.

Frágangur utanhúss:
Útveggir:
Útveggir eru timburklæddir með liggjandi klæðningu. Klæðning er meðhöndluð með svartri þekjandi viðarvörn, sem gefur svartan / dökkgráan lit.
Að innan eru útveggir almennt klæddir með Fermacell (fíbergips) og málaðir með ljós-gráum lit.
Útveggir í útigeymslu eru klæddir með OSB krossvið.
Þak: Að utan er þak klætt með tveimur lögum af ábræddum þakpappa ofan á OSB þakkrossvið. Áfellur og þakrennur eru með innbrenndum hvítum lit.
Að innan er þak klætt með annarsvegar hvítmáluðum gipsplötum og hinsvegar hvítum loftaplötum með áferð.
Raflagnir: Lampar og lýsing er fullfrágengin. Útilýsingu er stýrt með sólúri í rafmagnstöflu.
Lagnir: Öll inntök eru við aðalinngang, tengigrind og dreifing lagna er geymslum íbúða.
Hitalagnir eru steyptar í botnplötu hússins. Lagnir fyrir tengingar á útikrönum, vatnsfæðing að heitum potti og frárennsli verða til staðar.
Gluggar og útihurðir: Gluggar og útihurðir eru PVC. Hurðar eru með 3ja. punkta læsingum. Svalahurðir eru með opnunarstillingu. Hurð er úr stofu að sólpalli. Allir gluggar eru með opnunarstillingum. Allt gler er K-gler.
Trépallar: Timburpallur, ca 20 fm er á baklóð íbúða. Frágengnir skjólveggir eru á milli íbúða við timburpall Frágangur innanhúss:
Gólf: Gólfplata hússins er einangruð, járnbent og staðsteypt. Gólf hússins eru lögð með harðparketi. Gólflistar eru hvítlakkaðir. Gólf baðherbergja eru flísalögð með grófum náttúrulegum steinflísum. Gólf í útigeymslu er ómeðhöndluð steinsteypa.
Veggir: Veggir innanhúss eru klæddir fermacell plötum og málaðir í ljós-gráum lit (RAL 9002). Veggir á baðherbergjum eru flísalagðir með grófum náttúrulegum steinflísum. Veggir í útigeymslu eru klæddir OSB krossvið.
Innihurðar: Innihurðar eru hvít-lakkeraðar. Húnar og lykillauf eru svört að lit.
Innréttingar: hvítar Innréttingar með melamin áferð. Svartlitaðar höldur. Hvít eldhúsinnrétting með eyju.
Eldhústæki Bökunarofn með blæstri. Niðurfellt span-helluborð. Stór eldhúsvaskur og svart blöndunartæki Grohe eða sambærilegt eru AEG frá Ormsson eða sambærilegt frá innlendum innflutningsaðila.
Baðinnrétting og frágangur hvítar/ljós gráar með melamin áferð. Vaskur og blöndunartæki ofan-á borðplötu. Svört blöndunartæki frá Grohe eða sambærilegt. Sturtuklefar eru með þil úr hertu gleri. Svört blöndunartæki, sturtuhausar og handbrúsur í sturtum eru frá Grohe eða sambærilegt. Salerni eru innbyggð með Ceberit eða Grohe kassa, öll blöndunartæki eru frá Grohe eða sambærilegt.
Raflagnir: Raflagnir eru fullfrágengnar. Stofntafla er í inntaksrými. Ljós eru LED ljós með warm lýsingu. Ljós í stofu eru dimmanleg. Lágspennukerfi og sjónvarps/tölvutengingar í öllum rýmum. Rofar og tenglar eru svartir að lit frá Berker eða sambærilegt Gert er ráð fyrir tengimöguleika fyrir rafhleðslustöð/rafbílahleðslu um ídráttarrör frá aðaltöflu að tengistað.
Lagnir: Allar hitalagnir eru steyptar í gólfplötu hússins og stýrt með Danfoss hitanemum og stýringum.
Annað: Öll gluggalaus rými hússins eru loftræst.
Frágangur lóðar: Lóð: Bílastæði eru fullfrágengin með hellulögn, járnbentri steinsteypu. Lokað, forsteypt sorptunnugerði fyrir 3 sorpílát er við hverja íbúð. Lóð er fullfrágengin með grasþakningu. Fullfrágenginn timburpallur og skjólveggir eru á baklóð.

Byggingaraðili: Heiðarhús ehf
Aðalhönnuður hússins er Guðmundur Þórðarson, Glóra ehf, Reykjanesbæ
Burðarþols og lagnahönnuður hússins er Kristinn Eiríksson, Tensio ehf, Reykjavík.
Raflagnahönnuðir eru Gísli Lárusson / Guðni Lárusson, G-Lár ehf, Reykjanesbæ

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á.

 
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Háteigur 48
Skoða eignina Háteigur 48
Háteigur 48
250 Garður
101.9 m2
Raðhús
413
647 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Háteigur 52
Skoða eignina Háteigur 52
Háteigur 52
250 Garður
106.9 m2
Raðhús
312
600 þ.kr./m2
64.140.000 kr.
Skoða eignina Háteigur 48
Skoða eignina Háteigur 48
Háteigur 48
250 Garður
101.9 m2
Raðhús
413
647 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Háteigur 35
Skoða eignina Háteigur 35
Háteigur 35
250 Garður
101.2 m2
Parhús
514
651 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin