Heimili fasteignasala og Brynjólfur Snorrason, lgfs., kynna til sölu Grundarhús 3, 112 Reykjavík: Falleg íbúð á tveimur hæðum, með sérinngangi, gluggum á þrjá vegu, allt að fjórum svefnherbergjum og tveimur sérmerktum bílastæðum. Eignin er skráð 126,3 m2 að stærð en er að hluta til undir súð og með rislofti sem er ekki meðtalið í birti stærð og nýtanlegir fermetrar eignarinnar því fleiri en birt stærð segir til um. Eignin er afar vel skipulögð og samanstendur af sérinngangi, anddyri, þvottahúsi, snyrtingu, eldhúsi og borð- og setustofu á neðri hæð, þremur svefnherbergjum og baðherbergi á efri hæð auk fyrrgreinds rislofts sem í dag er nýtt sem skrifstofa en býður upp á aðra nýtingar möguleika. Þá tilheyrir eign sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og tvö sérmerkt bílastæði. Björt og falleg fjölskyldueign í grónu hverfi sem vert er að skoða!Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is Nánari lýsing: Forstofa: Sérinngangur, flísar á gólfi.
Þvottahús/geymsla: Inn af forstofu, góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegt fag innan rýmis og hillur á gagnstæðum vegg.
Hol/skáli: Fatahengi, á gólfi er parket.
Snyrting: Inn af holi, vegghengt WC og handlaug með fallegri viðarklæðningu og spegill fyrir ofan handlaug. Á gólfi eru flísar.
Eldhús: Rúmgott og bjart með fallegri hvítri innréttingu, miklu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Í eldhúsi eru gluggar á tvo vegu og rúmgóður borðkrókur. Á gólfi eru flísar.
Borð- og setustofa: Í opnu og björtu rými þar sem eru gluggar á tvo vegu og útgengi á suður svalir eignar. Á gólfi er parket að frátöldum útskotsglugga í stofu þar sem eru flísar.
Efri hæð: Gengið upp um hringlaga stiga og komið inn í parketlagt hol. Fyrir ofan stigann er stór gluggi til vesturs sem færir mikla birtu inn í íbúðina.
Herbergi 1: Rúmgott og bjart, gluggi til austurs auk þakglugga til suðurs, fatakápur innan herbergis og parket á gólfi.
Herbergi 2: Rúmgott og bjart, opnanlegur þakigluggi til suðurs, fatakápur innan herbergis og parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott á bjart, gluggi til austurs og þakgluggi til norðurs. í herbergi eru stórir fataskápar og á gólfi er parket.
Baðherbergi: Góð eldri innrétting með handlaug og neðri skápum. Í baðherbergi er baðkar og sér sturtuklefi. Á gólfi og á veggjum eru flísar og innan rýmis er opnanlegur þakgluggi.
Af stigapalli liggur stigi upp í
risloft/geymsluloft sem er í dag nýtt sem skrifstofa en býður upp á aðra notkunar möguleika. Á gólfi er parket og í rými er opnanlegur þakgluggi.
Loks tilheyra eigninni tvö sérmerkt bílastæði og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Vel skipulögð og falleg eign í grónu hverfi þar sem örstutt er í grunn- og leikskóla, sundlaug Gravarvogs og fallega náttúru. Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is
Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.