Föstudagur 9. maí
Fasteignaleitin
Skráð 6. maí 2025
Deila eign
Deila

Valshlíð 5

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
79.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
1.255.025 kr./m2
Fasteignamat
8.010.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
JH
Jóhann Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Útsýni
Aðgengi fatl.
Fasteignanúmer
2532730
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 5, 102 Reykjavík - Íbúð 511.
Íbúðin er staðsett í öðrum áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðir afhendast fullbúnar sumarið 2025.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu jafnvel tilboð beint á sölusíðu eignarinnar í eCASA

Virðuleg 3ja herbergja þakíbúð á 5. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns. Birt stærð er 79,6 fm þar af 6,9 fm geymsla í kjallara. Íbúðin er með aukinni lofthæð og skiptist í opið anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 1.


Nánari lýsing: Góður fataskápur í opnu anddyri. Gengið er beint inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu. Eldhús er með eyju. Útgengt er á suðursvalir með útsýni til vesturs. Taupe grá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Gott svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, Taupe grá innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Afmörkuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0062. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru með sér loftræsikerfi og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarfótur 19 220
Bílastæði
Opið hús:10. maí kl 13:15-13:45
Hlíðarfótur 19 220
102 Reykjavík
99.4 m2
Fjölbýlishús
312
995 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarfótur 19
Bílastæði
Opið hús:12. maí kl 17:00-17:30
Hlíðarfótur 19
102 Reykjavík
99.4 m2
Fjölbýlishús
312
995 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
77.5 m2
Fjölbýlishús
211
1315 þ.kr./m2
101.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
50 ára og eldri
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
83.9 m2
Fjölbýlishús
312
1226 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin