BYR fasteignasala kynnir í einkasölu ÁLFTARIMI 5 ÍBÚÐ 301, 800 Selfoss. Fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð ásamt bílskúr í fjölbýlishúsi miðsvæðis á Selfossi.
Stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla og leikskóla. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt, byggt árið 1989. Eignin skiptist í íbúð 102.4 m² og bílskúr 22.7 m², samtals 125.1 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, eldhús, stofa og borðstofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og gangur. Í sameign á jarðhæð er bílskúr og sérgeymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu og sorpgeymslu.
Nánari lýsing: Anddyri með flísum.á gólfi, fatahengi.
Eldhús, U-laga innrétting, eldavél, vifta, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, dúkur á gólfi.
Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými, plastparket á gólfi. Útgengt er frá stofu út á suðursvalir.
Herbergi I, hjónaherbergi með sexföldum fataskáp, dúkur á gólfi.
Herbergi II, fataskápur, dúkur á gólfi
Herbergi III, fataskápur, dúkur á gólfi.
Baðherbergi, baðkar, salerni og handlaug, þvottaaðstaða er á baðherbergi. Innrétting, flísalagt er upp á vegg við baðkar og handlaug, gluggi.
Íbúðin þarfnast standsetningar/endurnýjunar að innanverðu.Sér geymsla er á jarðhæð í sameign, málað gólf, gluggi.
Bílskúr/bílgeymsla er hægra megin við aðalinngang hússins,
sér bílastæði er framan við bílskúr. Í sameign er stigahús, þvottahús, inntaksrými, hjóla- og vagnageymsla og sorpgeymsla.
Álftarimi 5 er steypt þriggja hæða hús. Efsta hæð hússins er klædd að utanverðu með litaðri stálklæðningu.
Skipt var um járn á þaki hússins ásamt pappa og sperrum árið 2023, húsið var múrviðgert og málað að utan sumarið 2024.Á neðstu hæð er auk íbúða, innbyggðir bílskúrar, geymslur og sameiginleg rými fyrir allt húsið. Á fyrstu hæð eru fjórar íbúðir á annarri og þriðju hæð eru sex ibúðir á hvorri hæð, samtals eru 16 íbúðir í húsinu.
Lóð er sameiginleg fullfrágengin. Bílastæði á lóðinni eru sameiginleg, eigendur bílskúra hafa sérnot af bílastæðum framan við sinn bílskúr.
Lóðin er sameiginleg 2560,0 m² leigulóð í eigu Sveitarfélagsins Árborgar.
Skráning eignarinnar hjá HMS:Fastanúmer 218-5272.Stærð: Íbúð á hæð 96.8 m². Bílskúr 22.7 m². Geymsla 5.6 m². Samtals 125.1 m².
Brunabótamat: 54.190.000 kr.
Fasteignamat: 50.200.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2025: 53.200.000 kr
Byggingarár:1989.
Byggingarefni: Steypa.
Séreign, rými: 01.0108 Bílskúr. 01.0117 Geymsla. 01.0301 Íbúð á hæð.