Mánudagur 23. nóvember
Fasteignaleitin
Skráð 23. nóv. 2026

Fálkagata 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
42.9 m2
2 Herb.
1 Baðherb.
Verð
53.500.000 kr.
Fermetraverð
1.247.086 kr./m2
Brunabótamat
22.850.000 kr.
Byggt 1964
Jarðhæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20286593
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Fasteignasala Sævars Þórs kynnir vandaða og mikið endurnýjaða tveggja herbergja 42,9 fm íbúð á 1. hæð við Fálkagötu 17 í þriggja hæða fjölbýlishúsi í Hagahverfi í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, alrými eldhús, baðherbergi, svalir og geymslu.
 
Nánari lýsing
Komið er inn í íbúðina um parketlagða forstofu. Á gólfum alrýma íbúðarinnar er ljóst parket sem gefur rýminu hlýlegt yfirbragð. Parketið er nýtt og var sett á í sumar. Gengið er í alrými íbúðarinnar beint úr forstofunni. Íbúðin er einkar björt með stórum gluggum sem vísa í suður og hleypa mikilli birtu og hlýju inn. Úr alrýminu er opið inn í eldhúsið sem er í sérrými. Eldhúsið var endurnýjað í sumar og er rúmgott, með góðri innréttingu og fínu vinnuplássi.
Úr alrýminu er útengt á góðar suðursvalir sem stækka rýmir til muna á góðviðrisdögum. Alrýmið og eldhúsið var málað fyrr á þessu ári.
Gengið inn á baðherbergið í gegnum forstofuna. Baðherbergið er snyrtilegt og vel með farið með eldri innréttingu. Gólf og veggir voru flísalögð í fyrra haust með hvítum flísum auk þess sem skipt var um blöndunartæki í vask. Íbúðin er mikið endurnýjuð en í sumar var sett ný eldvarnarhurð/útidyrahurð, nýtt gólefni í alrými og eldhúsi ásamt listum, íbúðin var máluð og múruð, öll ljós endurnýjuð og rafmagn yfirfarið, skipt var um eldhúsinnréttingu og eldavél og ofn, ný hillusamstæða sett upp í svefnskoti í alrými, ný gluggatjöld voru sett upp í stóra stofuglugganum, baðherbergisdýr endurnýjaðar og ný veggskápur og spegill settur á baðherbergið.
 
Í sameign er sérgeymsla sem fylgir íbúðinni og sameiginlegt þvottahús.

Stigagangur og öll sameign er sérlega snyrtileg og vel við haldið. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og litið hefur verið eftir sameigninni reglulega.
Sameign hefur verið mjög vel við haldið sem og stigagangi. Bæði sameignin og húsið að utan eru í góðu ástandi og hafa verið töluvert endurnýjað og yfirfarið á árunum 2017-2025. Húsið var málað í fyrra og gert við múrverk auk þess sem skipt var um glugga á norðurhlið hússins. Árið 2023 voru viðgerðir á sameign sem fólust í bólstrun frárennslisstamma í sameign. Sameignin var máluð og teppalögð 2021 en sama ár voru eldvarnarhurðir að íbúðunum setta upp. Sameiginlegur þurrkari var keypur í þvottahúsið 2022.
 
Íbúðin er staðsett í hjarta Vesturbæjar þar sem stutt er í Ægisíðuna og alla helstu þjónustu. Háskóli Íslands, Melabúðin, Kaffihús Vesturbæjar, Sundlaug Vesturbæjar og fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni eru í næsta nágrenni. Húsið var oft kallað Leikarablokkin á árum áður og jafnvel Hollywood vegna fjölda leikara og listamanna sem bjuggu í húsinu. Um er að ræða bjarta og fallega íbúð á frábærum stað í mjög vinsælu hverfi. Laus strax.
 
Helstu kostir:
  • Afhending: Laus strax við kaupsamning.
  • Skipulag: Björt og opin rými með stórum gluggum.
  • Svalir: Góðar suðursvalir fylgja íbúðinni.
  • Ástand: Mikið endurnýjuð.
  • Sameign: Snyrtileg og reglulega endurnýjuð sameign.
  • Frábært staðsetning nálægt Ægisíðunni.
Fyrirliggjandi eru tvær ástandsskýrslur, önnur frá 2022 um frárennslislagnir undir kjallaragólfi og hin frá 2024 um ytra byrði hússins.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasala Sævars Þórs

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sólvallagata 27
Skoða eignina Sólvallagata 27
Sólvallagata 27
101 Reykjavík
99,9 m2
Fjölbýlishús
523
600 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Miðstræti 5
Skoða eignina Miðstræti 5
Miðstræti 5
101 Reykjavík
139,4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
412
1069 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14 íb. 203
Hnjúkamói 14 íb. 203
815 Þorlákshöfn
50,9 m2
Fjölbýlishús
21
862 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina Framnesvegur 63
Efsta hæð
Skoða eignina Framnesvegur 63
Framnesvegur 63
101 Reykjavík
116,7 m2
Fjölbýlishús
513
813 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin