Miðvikudagur 15. apríl
Fasteignaleitin
Opið hús:19. apríl kl 16:30-17:00
Skráð 12. feb. 2026

Bollagata 14

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
116.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
97.900.000 kr.
Fermetraverð
841.065 kr./m2
Fasteignamat
88.650.000 kr.
Brunabótamat
57.550.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2012243
Landnúmer
103411
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Raflagnir
Tafla í sameign endurnýjuð og þar eru öryggi íbúðar. Einnig er auka tafla innan íbúðar. 3ja fasa rafmagn er í hleðslustöð. Ekki er vitað um ídrátt.
Frárennslislagnir
Skólplagnir undir húsi og út í brunn endurnýjað mars 2026.Drenað við húsið garðmegin 2016 (tvær hliðar).
Gluggar / Gler
Verið endurnýjað gler og listar í gegnum árin. Smit á rúðum. Þyrfti að mála lista.
Þak
Endurnýjað þakjárn, þakkantur og húsið endursteinað 2016.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, tvennar svalir.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 4ra herb. sérhæð á 1. hæð í þríbýli að Bollagötu 14 í Reykjavík. Húsið er í Norðurmýrinni, við Klambratún. Húsið er steinsteypt, hefur verið endursteinað og þakið hefur einnig verið endurnýjað. Íbúðin er með þremur svefnherbergjum og samliggjandi eldhúsi og stofu. Baðherbergi var stækkað og rúmar því einnig þvottavél. Einnig er stórt þvottahús í sameign. Bílastæði inni á lóð fylgir. Þar sem húsið er í miðbænum, eru veitingastaðir, þjónusta og verslanir í nánasta nágrenni. Einnig er leiksvæði í götunni og á Klambratúni og göngufæri er í leik- og grunnskóla sem og Sundhöll Reykjavíkur.
Kjallaraíbúðin er í eigu sama aðila og er einnig möguleiki að kaupa hana.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslur. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 116,4 m2.


*VINSAMLEGA SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!
 
Smelltu hér og fáðu söluyfirlitið um hæl
Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af sameiginlgum inngangi með 2. hæð. Þar er komið inn á flísalagða forstofu þar sem einnig er gengið niður í kjallara. Innan íbúðar er stórt parketlagt hol með innfelldum hvítum fataskáp. 
Hol er miðja íbúðar og er þaðan gengið inn í allar vistarverur íbúðar. Innfelldur hvítur fataskápur fyrir yfirhafnir. Parket á gólfi.
Eldhús er nú staðsett í svokallaðri dagstofu við hlið stofu. Fallegur horngluggi til austurs og suðurs. Hvít eldhúsinnrétting með svartri borðplötu. Efri skápar ná upp í loft og milli skápa eru gráar veggplötur. Helluborð og háfur yfir, ofn og örbylgjuofn og innbyggð uppþvottavél fylgir. Öll tæki eru Siemens.
Stofa björt með gluggum til suðurs og vesturs. Gengið er út á bogadregnar svalir sem vísa út í garð. Parket á gólfi stofu.
Herbergi I er stærst herbergjanna og er þaðan hægt að ganga út á suðaustur svalir. Viðarskápar ná upp í loft og að auki er hvítur skápur.
Herbergi II er á suðvesturhorni húss með gluggum á tvo vegu. Þetta herbergi er minnst herbergjanna. Tvöfaldur fataskápur nær upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi III er það rými sem áður var eldhús. Gluggi til vesturs. Dökkar gólfflísar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Hvítar flísar á veggjum og gráar gólfflísar. Hvít innrétting undir handlaug og stæði fyrir þvottavél undir grárri borðplötu. Speglaskápur með ljósi, veggfestur ílangur hvítur skápur, upphengt salerni, króm handklæðaofn og sturtuklefi.
Þvottahús er einstaklega rúmgott, staðsett í sameign í kjallara.
Geymsla er sér í sameign í kjallara. Einnig er áhaldageymsla, dekkjageymsla og kyndiklefi/hjólageymsla í sameign.
Bílastæði er innan lóðar skv. venju fyrir þessa íbúð. 
Garður er snyrtilegur, stór og gróinn. 
Pottofnar eru í íbúðinni. Virkilega sjarmerandi og flottir eftir að þeir voru sandblásnir og sprautaðir.
Gólf hæðarinnar var flotað 2001 og gólfefni eru frá þeim tíma.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Bílskúr
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Ísleifsbúð 17
815 Þorlákshöfn
153.9 m2
Raðhús
413
528 þ.kr./m2
81.200.000 kr.
Skoða eignina Drangsskarð 6
Skoða eignina Drangsskarð 6
Drangsskarð 6
221 Hafnarfjörður
161.7 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
624
834 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Bústaðavegur 101
Opið hús:20. apríl kl 17:00-17:30
Bústaðavegur 101
108 Reykjavík
134.5 m2
Hæð
414
735 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Los Alcázares - Spánn
Los Alcázares - Spánn
Spánn - Costa Blanca
118 m2
Einbýlishús
533
838 þ.kr./m2
98.850.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin