Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Tjarnabraut 30, 260 ReykjanesbærNýlegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Eignin skiptist meðal annars í fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Gólfhiti er í öllum rýmum og loftskiptakerfi með varmaendurvinnslu er í húsinu. Við húsið er timburverönd með skjólveggjum og lóðin er tyrfð með steyptri innkeyrslu og snjóbræðslu.
Eignin er laus við kaupsamning!Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Bókaðu skoðun hér - Sýnum samdægurs!Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 168,9 m², þar af er íbúðarhús 146,0 m² og bílgeymsla 22,9 m². Eignin er byggð árið 2025, merkt 01-0101 og 01-0102, fastanúmer F2519817, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindum. Lóðin er skráð 896,0 m².Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús er í opnu alrými með stofu og borðstofu. Þar er U-laga HTH-innrétting með góðu skápaplássi, bakaraofni og helluborði frá AEG, uppþvottavél og háfi frá Elica. Ísskápur fylgir ekki eigninni.
Stofa og
borðstofa eru í björtu og opnu alrými með stórum gluggum. Útgengt er þaðan á
timburverönd með skjólveggjum.
Hjónaherbergi er með sér fataherbergi.
Þrjú svefnherbergi eru til viðbótar og eru fataskápar í tveimur þeirra.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, upphengdu salerni og opinni sturtu með glerþili.
Annað
baðherbergi er einnig flísalagt og með sturtu, upphengdu salerni og vaskinnréttingu.
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Þaðan er innangengt í bílskúr.
Bílskúr er skráður 22,9 m² og er með epoxy-gólfi og rafdrifinni bílskúrshurð. Ídráttarrör fyrir rafbílahleðslu er við bílskúr.
Harðparket er á meginrýmum og svefnherbergjum en
flísar eru í forstofu, baðherbergjum og þvottahúsi. Innihurðir eru sléttar og hvítar.
Byggingarlýsing: Húsið er staðsteypt og útveggir einangraðir að utan og klæddir álklæðningu. Gluggar og útihurðir eru úr timbri og áli. Þak er flatt með malarfargi. Innfelld LED-lýsing er í loftum, gólfhiti í öllum rýmum og loftskiptakerfi með varmaendurvinnslu.
Lóð og aðkoma: Lóðin er tyrfð og við húsið er timburverönd með skjólveggjum. Innkeyrsla er steypt og með snjóbræðslukerfi. Við enda innkeyrslu er steypt þriggja tunnu sorpskýli. Heitur pottur fylgir eigninni en er ekki uppsettur.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00