Föstudagur 23. október
Fasteignaleitin
Skráð 23. okt. 2026

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
77 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
17.900.000 kr.
Fermetraverð
232.468 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Byggt 2002
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
101231026
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Tvennar
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *FALLEG PENTHOUSE ÍBÚÐ MEÐ STÓRUM ÞAKSVÖLUM Í VILLAMARTÍN* *2 SVEFNHERBERGI* *RÚMGÓÐ GEYMSLA* *GLÆSILEGUR SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR* *FRÁBÆR STAÐSETNING STUTT FRÁ GOLFVÖLLUM, VERSLUNUM OG VEITINGASTÖÐUM*

Falleg og vel skipulögð penthouse íbúð á vinsælum stað í Las Filipinas í Villamartín, Orihuela Costa. Hér er frábært tækifæri til að eignast fasteign á Costa Blanca, hvort sem leitað er að notalegri orlofsíbúð, heilsársbúsetu eða eign til útleigu.
Eignin er staðsett í grónu og vinsælu íbúðahverfi, aðeins um 7 km frá hinum fallegu sandströndum La Zenia og Cabo Roig. Stutt er í nokkra af þekktustu golfvöllum svæðisins, meðal annars Villamartín Golf, Campoamor Golf og Las Ramblas Golf.

Íbúðin skiptist í tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með baðkari, bjarta stofu og sér eldhús með aðgengi að þvottahúsi.
Einn helsti kostur eignarinnar eru stórar og rúmgóðar þaksvalir, þar sem hægt er að útbúa glæsilega sólbaðsaðstöðu, notalega setustofu og grillaðstöðu. Einnig er möguleiki á að koma þar fyrir heitum potti, að uppfylltum nauðsynlegum skilyrðum og leyfum. Hér er hægt að njóta hins frábæra veðurfars á Costa Blanca og skapa sína eigin sælureit undir spænskri sól.
Eigninni fylgir einnig rúmgóð og hagnýt geymsla sem býður upp á gott aukapláss.

SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR
Íbúðin er í fallegu íbúðasamstæðu með stórum og glæsilegum sameiginlegum sundlaugargarði. Umhverfis sundlaugina eru gróðursæl svæði með trjám og náttúrulegum grasflötum, þar sem tilvalið er að slaka á og njóta sólarinnar.

Allar upplýsingar gefur
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, sími 0034 615 112 869, berta@spanareignir.is


FRÁBÆR STAÐSETNING Í VILLAMARTÍN
Las Filipinas er vinsælt og gróið íbúðahverfi í Orihuela Costa þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Aðeins nokkurra mínútna akstur er að hinu líflega Villamartín Plaza, þar sem finna má fjölbreytt úrval veitingastaða, kaffihúsa, bara og afþreyingar.
Í nágrenninu eru einnig matvöruverslanir, alþjóðlegur skóli, golfvellir og öll nauðsynleg þjónusta. Stutt er í hina vinsælu La Zenia Boulevard verslunarmiðstöð og fallegar strendur Costa Blanca.

FRÁBÆR KOSTUR TIL EIGIN NOTA EÐA FJÁRFESTINGAR
Villamartín er eftirsótt svæði bæði meðal þeirra sem vilja njóta orlofs á Spáni og þeirra sem kjósa heilsársbúsetu. Eftirspurn eftir leiguhúsnæði á svæðinu gerir eignina einnig áhugaverðan fjárfestingarkost, hvort sem horft er til langtímaleigu eða mögulegrar orlofsleigu, að fengnum tilskildum leyfum.

EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST PENTHOUSE ÍBÚÐ MEÐ STÓRUM ÞAKSVÖLUM Á VINSÆLUM STAÐ Í VILLAMARTÍN Á HAGSTÆÐU VERÐI!

Verð: 130.000 Evrur. (ISK 17.900.000 )

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.


Eiginleikar: þaksvalir, sameiginleg sundlaug, staðsetning, penthouse,
Svæði: Villamartin, Las Filipinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 14 (302)
Skjámynd 2026-06-05 135112.png
Vorbraut 14 (302)
210 Garðabær
70,1 m2
Fjölbýlishús
211
1054 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 28
Opið hús:28. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Maríugata 28
Maríugata 28
210 Garðabær
89,9 m2
Fjölbýlishús
312
889 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 50A
Skoða eignina Skipholt 50A
Skipholt 50A
105 Reykjavík
79,1 m2
Fjölbýlishús
211
860 þ.kr./m2
68.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (303)
Skjámynd 2026-06-05 135054.png
Vorbraut 14 (303)
210 Garðabær
68,6 m2
Fjölbýlishús
211
1077 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin