BYR fasteignasala kynnir í einkasölu DALBAKKI 1, 710 Seyðisfjörður. Fimm herbergja endaraðhús með bílskúr. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt, Eignin skiptist í íbúð byggð árið 1978, 113.5 m² og bílskúr byggður árið 1983 30.7 m², samtals 144.2 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Forstofa, gangur, eldhús, stofa og borðstofa, fjögur herbergi, baðherbergi og þvottahús/búr. Bílskúr.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |Nánari lýsing: Forstofa, þrefaldur fataskápur, frá forstofu er innangengt í alrými, gang og í þvottahús.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er út á timburverönd í bakgarði frá stofu, herbergi II er innaf stofu, upptekið loft er í stofuhluta.
Eldhús, U-laga innrétting, eldavél og vifta, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu (getur fylgt) ekki er gert ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Svefnherbergisgangur, rafmagnstafla.
Herbergi I, hjónaherbergi, þrefaldur fataskápur
Herbergi II, tvöfaldur fataskápur.
Herbergi III, tvöfaldur fataskápur (skráð geymsla á teikningu).
Baðherbergi, plötur á veggjum og flísar á gólfi. baðkar, salerni, vaskinnrétting, speglaskápur og gluggi.
Þvottahús/búr, pláss fyrir eina vél, sturtuklefi og hillur, gluggi.
Herbergi IV, (innaf stofu) ekki fataskápur, upptekið loft.
Gólfefni: Dúkur á forstofu og herbergjum á gangi. Parket á alrými og svefnherbergi inn af alrými. Flísar á baðherbergi. Málað gólf á þvottahúsi.
Bílskúr, milliloft, hillur, vatn og rafmagn, útgengt út í bakgarð.
Dalbakki 1-11 er sex íbúða raðhúsalengja. Húsið er steypt og málað að utan, timburgluggar og hurðar, járn á þaki. Ný útidyrahurð (2024), bárujárn á þaki var endurnýjað 2010.
Lóð er gróin og frágengin, hellulögð stétt liggur að innngangi hússins, steypt er við inngang hússins. Hellulagt plan er framan við bílskúr, hellulagt er frá bílastæði að inngangi.
Timburverönd er í bakgarði, frá timburverönd liggur hellulögð stétt að útgangi úr bílskúr, fánastöng, fáni fylgir.
Ekki er starfrækt húsfélag í eigninni. Lóðin er leigulóðí eigu Múlaþings, 638.5 m² að stærð.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 216-8494. Dalbakki 1.Stærð: Íbúð 113.5 m². Bílskúr 30.7 m². Samtals 144.2 m².
Fasteignamat: 33.650.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 37.250.000 kr.
Brunabótamat: 77.350.000 kr.
Byggingarár: Íbúð 1978. Bílskúr 1983.
Byggingarefni: Steypa