Hraunhamar fasteignasala kynnir: Fallega, bjarta og rúmgóða fjögurra-fimm herbergja hæð í tvíbýlishúsi með bílskúr og aukaíbúð, einstaklega vel staðsett neðst í rólegri botnlangagötu niðri við Kópavogslækinn, steinsnar frá Kópavogsdal. Stutt í fallegar gönguleiðir og alla helstu þjónustu.
Eignin er skráð 218,1 fm í heildina skv. HMS. Þar af bílskúr skráður 31,6 fm og íbúðarhluti 186,4 fm.- Auka tveggja herbergja íbúð með sérinngangi
- Þrjú góð svefnherbergi á aðalhæð
- Tvennar svalir í suðurátt
- Rúmgott alrými
Nánari lýsing eignar:
Aðalhæð: Sérinngangur.Gengið inn í rúmgóða flísalagða forstofu
með góðu skápaplássi. Hiti í gólfi.
Parketlagður
stigi upp á efri hæð.
Bjart opið alrými með aukinni lofthæð. Stórir gluggar.
Eldhús með hvítri innréttingu, gott skápapláss. Flísar á gólfi.
Setkrókur/borðkrókur en þar er útgengt á rúmgóðar
svalirnar sem snúa í suðurátt. Heitur pottur á svölum, svalahandrið og gott næði.
Borðstofa þar sem útgengt er á aðrar
svalir sem fara meðfram húsinu til suðvesturs.
Rúmgóð
stofa, fallegar franskar hurðir inn á svefnherbergisgang.
Virkilega rúmgott
hjónaherbergi með góðu skápaplássi, skápar ná upp í loft. Aukin lofthæð. Útgengt þaðan í bakgarðinn.
Rúmgott
barnaherbergi með góðu skápaplássi.
Barnaherbergi með fataskáp.
Mikið endurnýjað
baðherbergi. Flísar á gólfum og á veggjum í sturtu. Innrétting með góðum skúffum, upphengt salerni og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Gluggi. Hiti í gólfi.
Geymsluskápur á svefnherbergisgangi.
Geymsluloft er yfir hluta efri hæðar.
Flísar og gegnheilt fiskibeinaparket á gólfi aðalhæðar. Aukaíbúð:Sérinngangur á austurhlið hússins, vel aðskilin frá aðalíbúð og garði.
Ný innrétting með vaski og litlum innbyggðum ísskáp.
Stofa og borðkrókur, parket á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi með dumplastplötum á gólfi og á veggjum í sturtu. Tengi fyrir þvottavél á baðherberginu.
Hiti í gólfi í aukaíbúðinni.
Mögulegt er að opna á milli aðalhæðar og aukaíbúðar frá forstofu aðalhæðar ef vilji er fyrir því. Bílskúr með flísum á gólfi. Bílskúr hefur verið breytt og er minni en uppgefnir fermetrar. Innst í bílskúrnum hefur verið sett upp baðherbergi sem er nú hluti af aukaíbúð.
Skv. seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað á árunum 2020-2026Baðherbergi endurnýjað 2019
Hús málað að utan 2020
Ný svalahandrið 2021
Nýtt þak á sólskála (borðstofu) 2023
Skipt úr halógen í led í loftljósum efri hæðar 2025
Svalagólf máluð 2026
Þak málað 2026
Nýtt eldhús, baðherbergi og parket í aukaíbúð 2026
Gluggar yfirfarnir og gler endurnýjað eftir þörfum.
Falleg lóð, sameiginlegur garður í suðurátt. Sérgarður fyrir ofan hús.
Falleg eign sem vert er að skoða á þessum frábæra stað við Kópavogslækinn. Nánari upplýsingar veitir Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.