RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Brávallagötu 18, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Björt og falleg 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi á sérlega eftirsóttum stað við Brávallagötu í vesturbæ Reykjavíkur. Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 80,6 fm, þar af 3,9 fm geymsla í sameign.3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3DFÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Komið inn gang með fatahengi. Eldhús er rúmgott með snyrtilegri eldri innréttingu, gott pláss fyrir eldhúsborð, á gólfi er dúkur. Stofa og borðstofa eru samliggjandi með rennihurð, borðstofa er nýtt sem svefnherbergi í dag. Hjónaherbergi er rúmgott með fallegum fataskáp. Baðherbergi bjart með góðum glugga, baðkari og sturtuaðstöðu, flísalagt hólf í gólf. Gólfefni íbúðar er ljóst parket á öllum gólfum nema á baðherbergi og eldhúsi. Sameign er snyrtileg með fallegum bláum dúk á stigagangi, sér geymsla með hillum og sameiginlegt þvottahús með tenglum fyrir hverja íbúð með þurrkherbergi og hitakompu.
Mjög fallegur sólríkur framgarður með fallegum gróðri, borði og stólum. Risastór afgirtur leikgarður er að aftan sem myndar L utan um bakhlið byggingarinnar. Hluti hans er með gömlum hellum, hinn hlutinn er með grasi, trjám og rifsberjarunnum. Garðurinn býr yfir miklum möguleikum, til að mynda er hægt að setja hjólageymslur. Brávallagata 18 er hluti af svæði sem nefnist Bakkó, á bakvið öll húsin liggur fallegur L laga göngustígur sem býr til frábært öruggt leikrými fyrir krakka og frábæra nágranna stemningu. Brávallagata er róleg og örugg einstefnugata á besta stað í bænum. Í göngufæri við gamla miðbæinn, Tjörnina, Hljómskálagarðinn, Kaffi Vest, Vesturbæjarlaug, Kjötborg, Melabúðina og gamla kirkjugarðinn ofl. Búið er að setja rafhleðsluþjónustu í stæði við götuna.
Í göngufæri við Landakotsskóla, Vesturbæjarskóla, Melaskóla. Í göngufæri við Háskóla Íslands og HR. Einnig eru fullt af leikskólum í göngufæri m.a. Tjarnarborg, Öldukot, Hagaborg, Sæborg, Tjörn, Drafnarborg, Drafnarsteinn og Vesturborg.Búið er að framkvæma mikið í eigninni undanfarin ár. - Ný rafmagnstafla var sett í sameign og íbúð
- 2020 Skipt var um alla glugga í þvottahúsinu, þurrkherbergi og öllum geymslum.
- 2020 Sett var öflug hljóðlát vifta í þurrkherbergið sem dregur heitt loft úr hitakompunni um allt þvottahúsið.
- 2019 Allir gluggarnir í húsinu voru yfirfarnir að utan, skipt var um lista eftir þörfum og þeir málaðir
- 2020 Húsið var allt steinað í tvílit að framan
- 2020 Sett var ný renna
- 2020 Vinstri húsgaflinn var tekin í gegn, gert við sprungur og hann málaður.
- Skipt var um þak c.a 2007
- 2020 Skipt var um þak á hluta að framhlið
- 2020Sett var var snjóbræðslu hiti í stóru rennurnar á þakinu á framhliðinni
- Eftir steiningu voru gluggarnir aftur málaðir.
- Skipt var um frárennslislagnir vinstra megin í húsinu í kjallara.
- 2021 frárennslislögn hægra megin fóðruð frá svölum að tengingu í nýju lagnir inn í þvottahúsi.
- Gluggar í íbúðinni eru nýrri en í öðrum íbúðum
- 2019 Skipt var um salerni, sett voru nýjar baðinnréttingar, vaskur og blöndunartæki. Ný blöndunartæki og tappar í bað og sturtu.
- 2019 Skipt var um vask í eldhúsi og sett ný blöndunartæki
- 2024 Eldhúsinnréttingu var breytt til að að koma fyrir stærri ísskáp
Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.is- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í
lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.