Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Afar falleg og vel skipulögð 94,4 fm, 3ja herbergja íbúð á neðri hæð í þríbýli að Reynihvammi 27, 200 Kópavogi.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is
Nánari lýsing eignar:Forstofan með flísum á gólfi.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu, eldavél og ísskápur.
Stofa& Borðstofa er björt með gluggum í suður og vestur og með flottu útsýni.
Hjónaherbergið er með harðparketi á gólfi og rúmgóðum skáp.
Barnaherbergi með fataskáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergið er með flotað og málað gólfið svart, og ljósar flísar á öllum veggjum endurnýjað 2020 allt. Upphengt salerni og walk-in sturta. Nýleg dökk innrétting með vaski.
Þvottahús/geymsla er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Tvö bílastæði eru á lóð.
Bílskúr sem telur 24,1fm er á lóðinni, rafmagn, rennandi vatn og niðurfall er í skúrnum.
Fallegt útsýni til suðurs, skjólsæll garður í suður, björt og skemmtileg eign á þessum vinsæla stað í suðurhlíðum Kópavogs. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leikskóla og grunnskóla ásamt íþróttasvæði Breiðabliks.
Helstu framkvæmdir:2016-2018: Gólfhiti í eldhúsi og eldhús endurnýjað. Skipt um járn á þakinu (2017).
2020: Baðherbergi endurnýjað, nýjar fráveitulagnir og neysluvatn.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma
899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.