Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í sölu glæsilega 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi fyrir 55 ára og eldri að Engjalandi 2 íb. 402, Selfossi. Tæplega 60 fm svalir undir þakskeggi. Á verönd er heitur pottur. Rúmgott bílastæði í bílakjallara. Íbúðin er ný fullbúin og tilbúin til afhendingar við kaupsamning. Íbúðin er 156,2 fm 4.hæð með sér inngangi af svalagangi. Auk þess er geymsla í kjallara 13,0 fm. Samtals er eignin 169,2 fm. Rafmagnsopnun er á útihurðum í sameign. Myndavélasími er í anddyri. Bílastæði í rúmgóðum bílakjallara. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Vandað loftræstikerfi með upphitun.
Nánari lýsing íbúðar:- Forstofa með stórum skápavegg með skápum frá gólfi upp í loft.
- Hjónaherbergi með stórum skápavegg með skápum frá gólfi upp í loft.
- Sérbaðherbergi innaf hjónaherbergi með útgengi út á svalir. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Vönduð innrétting. Sturta með innfeldum tækjum og sturtugleri. Stýringar fyrir heitan pott.
- Svefnherbergi.
- Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Sturta með innfeldum tækjum og sturtugleri. Innréttingar.
- Eldhúsinnrétting er vönduð. Eyja með helluborði með innbyggðum gufugleypi. Innfeldur ísskápur og uppþvottavél frá Miele. Bakaraofn og combiofn frá Miele. Borðplata ljós steinn.
- Innaf eldhúsi er þvottahús með innréttingum, skolvaski.
- Stofan alrými er mjög rúmgott. Vandaður innbyggður arinn er í stofunni. Rennihurð er út á svalir. Rafmagnsmótor er á gardínum í stofu og eldhúsi.
- Svalir 59,5 fm eru undir þakskeggi, flísalagðar á vandaðann hátt. Heitur pottur með stýringum og loki.
Lóðin er eignarlóð. Lóðin er frágengin, stórt malbikað bílastæði, steyptar stéttar framan við hús með hitalögnum.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 steindor@husfasteign.is ,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.