Þriðjudagur 17. nóvember
Fasteignaleitin
Opið hús:26. nóv. kl 17:00-18:00
Skráð 16. nóv. 2026

Brekkutangi 11

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
278 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
139.000.000 kr.
Fermetraverð
500.000 kr./m2
Fasteignamat
136.450.000 kr.
Brunabótamat
135.750.000 kr.
Mynd af Karl Lúðvíksson
Karl Lúðvíksson
Sölustjóri - Íbúðareignir
Byggt 1976
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2083189
Landnúmer
124274
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Nýlega skipt um glugga og gler að hluta
Þak
Endurnýjað 2023
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
CROISETTE kynnir í einkasölu vel skipulagt og rúmgott 278 fm raðhús á þremur hæðum við Brekkutanga 11 í Mosfellsbæ.  Þetta er virkilega góð eign fyrir stóra fjölskyldu og er vel staðsett í vinsælu og barnvænu hverfi. Stutt í Lágafellsskólaskóla, leikskóla, sundlaug, líkamsrækt og þjónustukjarna.  Þakið var endunýjað 2023 og gluggar og gler í stofu á miðhæð var endurnýjað í haust 2026.  Í húsinu eru núna fimm svefnherbergi en hægt er að breyta stóra herberginu í kjallaranum í tvö góð herbergi. Góður 25 fm bílskúr sem gengið er inní beint frá forstofu. Fyrir framan húsið er stórt leiksvæði með leiktækjum fyrir krakkana í hverfinu. Allar nánari upplýsingar veitir Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT.

Nánari lýsing miðhæð:
Forstofa:
Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi. Innangengt í 25 fm bílskúr.
Eldhús: Fallegt eldhús með ljósum beykiskápum og mjög góðu skápaplássi.  Útdraganlegar skúffur undir borði, pláss fyrir tvöfaldan ísskáp, spanhelluborð og gufugleypir, lýsing undir efri skápum, ljósar flísar á veggjum milli skápa. Flísar á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Stór og björt stofa með góðu borðstofuplássi, útgengt út í garð úr stofu.  Skipt um glugga og gler haust 2026.  Parket á gólfi, viðarpanill í lofti.
Gestasalerni: Flísar á gólfi, innrétting með frístandandi vask, salerni og hillur.
Bílskúr: Góður 25 fm bílskúr með flotuðu gólfi.

Nánari lýsing önnur hæð:
Hjónaherbergi:
Gott herbergi með góðum loftháum eldri skápum. Útgengt út á svalir. Plastparket á gólfi.
Barnaherbergi I: Gott herbergi með plastparket á gólfi.
Barnaherbergi II: Ágætt herbergi með harðparket á gólfi.  Útgengt út á svalir.  Hægt er að loka fyrir svalirnar og stækka herbergið. 
Skrifstofa/Barnaherbegi III: Gott herbergi sem er nýtt sem skrifstofa í dag.  Útgengt út á svalir. Plastparket á gólfi.  
Baðherbergi:
Stórt baðherbegi með baðkari, salerni, innréttingu með skápum fyrir ofan og neðan vask. Flísar á gólfi.

Nánari lýsing kjallari:
Herbergi:
Stórt og opið rými sem er hægt að breyta í tvö um það bil jafn stór herbergi. Plastparket á gólfi.
Tómstundaherbergi: Stórt gluggalaust herbegi sem er nýtt sem fataherbegi. Yrði gott tómstundaherbergi fyrir stóra fjölskyldu. Plastparket á gólfi.
Geymsla: Góð og stór geymsla, flotað gólf.
Baðherbergi: Stórt baðherbergi með sturtu og gert er ráð fyrir gufubaði. Flísar á gólfi. Ekki er salerni.
Þvottahús: Stórt þvottahús, epoxygólf, góð innrétting með vask og góðu skápaplássi.  Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 55
Bílskúr
Skoða eignina Vorbraut 55
Vorbraut 55
210 Garðabær
264,6 m2
Raðhús
624
926 þ.kr./m2
244.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 9
Skoða eignina Jöfursbás 9
Jöfursbás 9
112 Reykjavík
53,9 m2
Fjölbýlishús
211
993 þ.kr./m2
53.500.000 kr.
Skoða eignina Breiðavík 21
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Breiðavík 21
Breiðavík 21
112 Reykjavík
95,2 m2
Fjölbýlishús
312
734 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Grundarás 12
Bílskúr
Opið hús:22. nóv. kl 15:00-15:30
Skoða eignina Grundarás 12
Grundarás 12
110 Reykjavík
284,3 m2
Raðhús
634
527 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin