Föstudagur 9. maí
Fasteignaleitin
Skráð 4. maí 2025
Deila eign
Deila

Ljósheimar 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
99.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
703.927 kr./m2
Fasteignamat
66.450.000 kr.
Brunabótamat
45.600.000 kr.
Mynd af Brynjar Ingólfsson
Brynjar Ingólfsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1960
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2022111
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Óvitað
Raflagnir
Sjá lýsingu
Frárennslislagnir
Óvitað
Gluggar / Gler
Viðhaldsþörf
Þak
Sjá lýsingu
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kvöð / kvaðir
Á upprunalegum teikningum eru tvö herbergi og tvær stofur en eigandi breytti einni stofu í herbergi.
 
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Mjög vel skipulögð og björt þriggja til fjögurra herbergja 99,3 fm á 2. hæð í töluvert endurnýjuðu og vinsælu lyftuhúsi við Ljósheima 12. 

- Húsvörður er í húsinu

- Nýtt baðherbergi 2024 (stækkað)
- Ný eldhúsinnrétting 2024
- Nýlegt gólfefni 2024


Íbúðin er með sérinngangi af svölum og er aðkoman að húsinu öll hin snyrtilegasta. Gangstétt fyrir framan hús hefur verið endurnýjuð og lögð snjóbræðsla undir.  Anddyri hefur einnig verið endurnýjað, þ.e. úti- og innri dyr með rafdrifinni opnun og settir upp mynddyrasímar.
Staðsetning er mjög góð, rótgróið og fjölskylduvænt hverfi miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, heilsugæslu, heilsurækt, leik- grunn og framhaldsskóla og allar helstu verslanir.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 99,3 fm og er íbúðarrýmið sjálft 94,6 fm og geymsla í kjallara 4,7 fm.
 
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Brynjar Ingólfsson löggiltur fasteignasali s: 666 8 999 eða á netfangið brynjar@remax.is

Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, hol, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.  

Nánari lýsing: 
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Þvottahús er inn af forstofu, gólf er málað. Má einnig nýta sem geymslu eða búr.
Eldhús er með ljósri innréttingi og er korkur á gólfi.
Borðstofa og stofa eru samliggjandi í björtu rými með parketi á gólfum.   
Svefnherbergi eru þrjú í dag og með korki á gólfum. Hjónaherbergið er í dag þar sem borðstofan er upphaflega og er útgengt á vestur svalir. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi og hvít snyrtileg vaskinnrétting.
Geymsla íbúðar er staðsett í sameign í kjallara, um 4,7 fm. að stærð.  Sameiginlegt þvottahús er einnig í sameign og sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur.  Garður er sameiginlegur, stór og gróinn.  Bílastæði eru sameiginleg.
 
Framkvæmdir undanfarin ár í sameign:
2020 - Sett upp rafhleðslustöð fyrir rafmagnsbíla og suðurhlið stigahúss klætt.
2017 - Stigahús flísalagt
2010 - Skipt um glugga í stigahúsi
2011-2012 - Múrviðgerð og málning á húsinu
2009 - Dyrasímakerfi endurnýjað og settur upp myndsími
2006 - Aðalinngangur endurnýjaður. (Útidyr og innri útidyr) um.
2006-2007 - Suðurgafl hússins einangraður og klæddur.
2004 - Gangstétt fyrir framan hús endurnýjuð og lögð snjóbræðsla undir . 
2003 - Aðalrafmagnstöflur í kjallara endurnýjaðar.
Þakklæðning var endurnýjuð fyrir ca. 25 árum, ekki er vitað annað en hún sé í góðu lagi og ekki vitað um neinn þakleka. 
Raflagnir í sameign eru að miklu leiti upprunalegar en töflur voru endurnýjaðar. 
Timburverk í gluggum að mestu upprunalegt en skipt hefur verið um gler í flestum íbúðum.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/04/202356.900.000 kr.59.000.000 kr.99.3 m2594.159 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipasund 54
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Skipasund 54
Skipasund 54
104 Reykjavík
100.9 m2
Fjölbýlishús
413
693 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ljósheimar 6
Skoða eignina Ljósheimar 6
Ljósheimar 6
104 Reykjavík
105.8 m2
Fjölbýlishús
413
689 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Ljósheimar 10
3D Sýn
Skoða eignina Ljósheimar 10
Ljósheimar 10
104 Reykjavík
98.2 m2
Fjölbýlishús
412
687 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Ljósheimar 10
Skoða eignina Ljósheimar 10
Ljósheimar 10
104 Reykjavík
98.2 m2
Fjölbýlishús
412
722 þ.kr./m2
70.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin