Fimmtudagur 4. júní
Fasteignaleitin
Opið hús:06. júní kl 12:00-14:00
Skráð 3. júní 2026

Þorraholt 13B (502) Þakíbúð

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
171.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
210.000.000 kr.
Fermetraverð
1.227.352 kr./m2
Fasteignamat
64.600.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2541287
Landnúmer
234799
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Þaksvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
--- Glæsileg 4ra herbergja þakíbúð (penthouse) við Þorraholt 13B í Garðabæ með lyftu sem gengur beint inn í íbúð og með tveimur bílastæðum í bílakjallara. Rúmgott alrými (eldhús, sjónvarpsstofa, borðstofa og setustofa), hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi, tvö baðherbergi (annað inn af hjónasvítu), þvottaherbergi, þaksvalir og auka svalir ---

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.thorraholtid.is Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Þorraholt 13B í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 5 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara flestum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt sérgeymslu á jarðhæð. 


Íbúð 502: Er glæsileg 171,1 fermetra 4ra herbergja þakíbúð á 5. hæð (efstu) með þaksvölum með miklu útsýni og auka svölum. Tvö sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgja íbúðinni. Geymsla fylgir íbúðinni sem er 11,7 fermetrar að stærð. Afhending er í september/október 2026 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í rúmgóðu alrými með eyju sem er opið við stofu/borðstofu, sjónvarpsstofu sem er hægt að breyta í fjórða svefnherbergið, 3 svefnherbergi (þar af hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi), tvö baðherbergi (annað inn af hjónasvítu) og þvottaherbergi. Útgengi á þaksvalir og auka svalir frá stofum.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.thorraholtid.is


ATH: Ljósmyndir og tölvumyndir þurfa ekki að endurspegla innra skipulag þessarar íbúðar og eru einungis til þess að átta sig á innréttingum, tækjum o.s.frv.

Þorraholt stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf.

Svæðið í kringum Þorraholt býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn.

ÞG Verk hafa yfir 28 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS


Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru Nobilia innréttingar frá GKS. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Íbúðum er skilað með spanhelluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál (Laufen) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru hitastýrð frá Damixa. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv. skilalýsingu. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2026
Fasteignanúmer
2541287
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
36
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2026
Fasteignanúmer
2541287
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
37
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 14 (404)
Hnjúkamói 14 (404)
815 Þorlákshöfn
75.5 m2
Fjölbýlishús
312
740 þ.kr./m2
55.900.000 kr.
Skoða eignina Kambasel 28
Bílskúr
Skoða eignina Kambasel 28
Kambasel 28
109 Reykjavík
123.1 m2
Fjölbýlishús
312
608 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Njálsgata 80
Skoða eignina Njálsgata 80
Njálsgata 80
101 Reykjavík
106.2 m2
Fjölbýlishús
323
894 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Auðbrekka 16
Skoða eignina Auðbrekka 16
Auðbrekka 16
200 Kópavogur
123.4 m2
Fjölbýlishús
312
647 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin