Fimmtudagur 1. október
Fasteignaleitin
Skráð 1. okt. 2026

Sjávarborg 2

RaðhúsSuðurnes/Vogar-190
103.2 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
754.845 kr./m2
Fasteignamat
68.000.000 kr.
Brunabótamat
61.400.000 kr.
Byggt 2023
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2524641
Landnúmer
233149
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
06
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Ásberg fasteignasala kynnir eignina: Sjávarborg 2F, 190 Vogar, birt stærð 103.2 m².  
Fimm herbergja raðhús á einni hæð, á góðum stað í Vogunum. Sjávarborg er hverfi í uppbyggingu með glæsilegu sjávarútsýni.

Skipulag eignar : Forstofa, stofa, borðstofa/eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla.

Fallegt útsýni úr alrými
4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla
Gólfsíðir gluggar og aukin lofthæð (allt að 4 m á hæsta punkti)
Danfoss stýrikerfi fyrir gólfhita
Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslu og heitan pott
Vandað harðparket frá Parka og hágæða flísar á baðherbergi.
 
Nánari lýsing eignar
Forstofa er flísalögð með rúmgóðum fataskápum og hurð inn á gang.
Stofa og borðstofa eru í opnu alrými með eldhúsi. Rúmgóð stofa með útgengi á sólpall klæddan fallegu lerki. Lofthæð innan eignarinnar nær allt að fjórum metrum á hæsta punkti sem setur mikinn svip á rýmið. Innfelld lýsing er þar sem við á. Sólpallurinn er timburklæddur með skilrúmi milli íbúða.
Eldhúsið er opið við stofu, með ljósgrárri melamín-innréttingu og svartri kvarsborðplötu. Með hverri íbúð fylgir span helluborð, ofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
Svefnherbergin eru fjögur talsins, öll með fataskápum í sama lit og efni og eldhúsinnrétting. Parket er á gólfum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með 60x60 flísum, með upphengdu salerni, sturtuklefa og innréttingu við vask með mjúklokun á skúffum, auk tengja fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er staðsett fyrir ofan baðherbergi (stigi upp fylgir) og má einnig nýta sem svefnloft. Parket er á gólfum.
Verönd og lóð: Lóð er tyrfð. Verandir við bakhlið eru úr lerki með skjólvegg á milli húsa. Stéttir og bílastæði við aðkomuhlið eru hellulögð með snjóbræðslu í gangstéttum. Bílastæði er fyrir framan hvert hús.

Frágangur innanhúss
Innveggir eru smíðaðir úr timburgrind, klæddir plötum, og uppfylla kröfur um lofthljóðeinangrun milli herbergja innan íbúðar.
Gólfefni er vandað harðparket Light Cracked Oak 8 mm frá Parka.
Baðherbergi er flísalagt með 60x60 cm flísum á gólfi og veggjum, loft er málað. Geymsluloft er fyrir ofan baðherbergi.
Innréttingar eru vandaðar, frá Parka – eldhús-, bað- og fataskápainnréttingar úr melamíni.
Innihurðar eru hvítar, yfirfelldar, frá Parka.
Rimlagluggatjöld fylgja öllum gluggum.
Íbúðinni fylgir span helluborð, bökunarofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.

 Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásbergs í síma 421-1420 eða á skrifstofu að Hafnargötu 27. www.asberg.is  asberg@asberg.is 

Jón Gunnarsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-3837, jon@asberg.is
Þórunn Einarsdóttir síma 898-3837, thorunn@asberg.is
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu er kr. 69.900 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/02/202455.700.000 kr.71.000.000 kr.103.2 m2687.984 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sjávarborg 4
Á einni hæð
Skoða eignina Sjávarborg 4
Sjávarborg 4
190 Vogar
91.4 m2
Raðhús
414
743 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkardalur 23A - 101
Bjarkardalur 23A - 101
260 Reykjanesbær
108.2 m2
Fjölbýlishús
413
670 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Flétturimi 7
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Flétturimi 7
Flétturimi 7
112 Reykjavík
98.7 m2
Fjölbýlishús
312
850 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Staðarborg 24A
Skoða eignina Staðarborg 24A
Staðarborg 24A
190 Vogar
131.2 m2
Raðhús
514
660 þ.kr./m2
86.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin