Fasteignaland fasteignasala og Hörður Sverrisson, lgf s 777-5209, hordur@fasteignaland kynna til sölu:
Hallgerðartún 57 sem er glæsilegt og vel skipulagt fullbúið endaraðhús á einni hæð á fallegum stað á Hvolsvelli.
Eignin er 152,8 m2, þar af er bílskúr 30,8 m2.
Einstaklega vönduð og falleg eign, mikil lofthæð, innfelld lýsing, hiti í gólfum, flísalagður bílskúr. Fallegt umhverfi og glæsilegt útsýni.
Húsin eru byggð úr timbri og eru á steyptum sökklum. Húsin eru klædd með Cembrit sementsklæðningu. Gluggar eru úr timbri, með áli að utan og þreföldu gleri.
Innréttingar og tæki eru innflutt og sérsmíðuð, gólfhiti, parket og flísar á gólfi, yfirfelldar hurðir af vandaðri gerð og sólpallur í suður. Varmaskiptir á neysluvatni og gólfhita.Lóð er sléttuð og tyrfð og bílaplan hellulagt, ruslatunnuskýli verða frágengin. Glæsileg, rúmgóð og vel skipulögð eign með mikilli lofthæð ( 270 cm).
Nánari lýsing endaraðhúss:
Forstofa með skáp og flísum á gólfi.
Eldhús er með innfluttri, sérsmíðaðri innréttingu, ljúflokunarbúnaður á skúffum, ledlýsing undir efri skápum, innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgir með, bakaraofn og span helluborð með viftu. Steinborðplötur á eldhúsinnréttingu.
Stofa, borðstofa og eldhús er í opnu og björtu alrými með útgengt á timburverönd í suður.
Baðherbergi er með flísum á gólfi á tveimur veggjum, innbyggt upphengt salerni, walk in sturta og handklæðaofn.
Hjónaherbergi (16,0 m2) er með fataskápum, gott skápapláss.
Tvö svefnherbergi (10,4 m2 hvort) með fataskápum.
Þvottahús með góðri innréttingu og flísum á gólfi, innangengt úr þvottahúsi í bílskúr
Bílskúr með rafdrifinni innkeyrsluhurð ásamt gönguhurð, epoxy á gólfi.
Verönd útgengt úr stofu á góða verönd sem snýr í suður sem er 3 metrar meðfram öllu húsinu að bakatil.
Byggingaraðili er SA smíðar ehf sem hafa áunnið sér góðan orðstír fyrir vönduð vinnubrögð og skil á réttum tíma.
Eigninni verður skilað fullfrágenginni að utan sem og innan, með gólfefnum. Eignin skilast á byggingarstigi 7, matstigi 7. Fullfrágengin skv. skilalýsingu.
Kaupandi mun greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati. Gatnagerðargjald og tengigjöld veitna eru greidd af seljanda
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. Fasteignaland fasteignasala ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.