Hraunhamar fasteignasala kynnir: Rúmgóða 4-5 herbergja endaíbúð á 3. hæð (efstu) í góðu fjölbýli vel staðsettu við hraunjaðurinn í Norðurbænum í Hafnarfirði. Skemmtilegt útsýni. Öll helsta þjónusta er í göngufjarlægð, skóli, leikskóli og verslun.
Eignin er skráð skv. FMR 107,2 fm en til viðbótar er sér geymsla í sameign. Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing: Forstofa/hol með fataskáp. Sjónvarpshol. Rúmgóð og björt stofa og borðstofa (er stórt herbergi í dag, ætti að vera einfalt að breyta í fyrra horf). Eldhús með upprunalegri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa, þar inn af er þvottahús og geymsla.
Svefnálma. Rúmgott hjónaherbergi og tvö svefnherbergi. Flísalagt baðherbergi, baðkar með sturtuaðstöðu í. Gluggi. Frá svefnherbergisgangi er útgengt á rúmgóðar suður svalir.
Gólfefni eru parket og flísar.
Skemmtileg íbúð sem bíður upp á mikla möguleika.
Gott sameiginlegt bílastæði þar sem búið er að setja upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla.
Nánari upplýsingar veitir Valgerður Ása Gissurardóttir löggiltur fasteignasali s. 791-7500 eða vala@hraunhamar.is
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is