Valhöll kynnir til sölu tveggja íbúða hús ásamt bílskúr í Nökkvavogi 31, 104 Reykjavík. Eignin er á tveimur fasteignanúmerum og er sérinngangur í báða eignarhlutana. Búið er að gera íbúðarrými í bílskúrnum. Þetta er eign sem býður upp á ýmsa möguleika og mögulegt að hafa góðar leigutekjur af henni.
Árin 2021 - 2022 var húsið endurnýjað að hluta. Þá var þakjárn hússins endurnýjað ásamt þakrennum, öllum gluggum og gleri í húsi og bílskúr, hús og bílskúr klædd að utan og settar nýjar svalir. Einnig var útbúið íbúðarrými í bílskúrnum og bílskúrshurðin endurnýjuð. Þá var baðherbergi efri hæðar endurnýjað.
Samkvæmt skráningu frá Þjóðskrá Íslands er að ræða 85,5 fm efri hæð sem fylgir 35,2 fm bílskúr og 66,4 fm íbúð í kjallara. Samtals er eignin því 187,1 fm að stærð. Sameiginlegt fasteignamat eignanna er 143.750 kr.
Húsið er byggt árið 1949 og er með steyptum kjallara og timbur efri hæð.
Nánari lýsing:
Efri hæð:
Efri hæðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, samliggjandi stofu og borðstofu, eldhús, baðherbergi og geymsluloft. Frá efri hæðinni er stigi niður á neðri hæðinni í sameiginlegt þvottahús. Mögulegt er að færa eldhúsið inn í stofuna og búa þar með til þriðja svefnherbergið.
Neðri hæð:
Neðri hæðin skiptist í forstofu / gang, eldhús, stofu, tvö samliggjandi svefnherbergi, sameiginlegt þvottahús með efri hæðinni og kalda geymslu undir útitröppum.
Bílskúrinn er skráður 35,2 fm á stærð. Aftast í honum er stúkuð af geymsla.
Nánari upplýsingar veita:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögmaður í síma 699 4407 eða á netfangið snorri@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.