RE/MAX og Páll kynna þessa glæsilega 108,1 fermetra 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu 4ra hæða húsi við Naustavör 50 í Kópavogi. Íbúðin er einstaklega björt og vel skipulögð með gólfsíðum gluggum, viðarparketi og innfeldri lýsingu víðsvegar um íbúðina. Aukin lofthæð og gólfhiti er í íbúðinni ásamt svölum með svalalokun og sjávarútsýni. Eigninni fylgir einnig stæði í bílageymslu með hleðslustöð og sér geymsla.Hér er hægt að skoða eignina í 3dEignin skiptist í: forstofu, hol, barnaherbergi, hjónaherbergi með fataskápum, baðherbergi, þvottaherbergi, eldhús með eyju, stofu og borðstofu.Fyrirhugað fasteignamat 2027 er 109.850.000 kr.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun hjá:
Páll Guðmundsson sími 861-9300 eða pallb@remax.isNánari lýsing eignar:Forstofa með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Eldhús er bjart og glæsilegt með fallegri innréttingu frá Brúnás og parketi á gólfi. Stór eyja með ljósum steini á borði og gólfsíðum glugga.
Borðstofa og stofa í björtu alrými . Gólfsíðir gluggar og parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi, gólfsíðum glugga og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II með gólfsíðum glugga, parketi á gólfi og góðum fatskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting, handklæðaofn og walk-in sturta með glerþili. Borðplatan er úr ljósum steini.
Þvottahús með innréttingu, vaski og flísum á gólfi.
Eigninni fylgja svalir til vesturs með svalalokun (9,7 fm).
Sér geymsla (7,6 fermetra) fyrir aftan bílastæði í kjallara fylgir eigninni og lyfta er í húsinu.
Stæði í bílageymslu fylgir eigninni með rafhleðslustöð.
Útsýni af svölum yfir Snæfellsjökul og fallegt útsýni af sólsetrinu af svölunum.
Eikarparket úr viði á gólfum, þykkari steinn á borðplötum í eldhúsi og baðherbergi.
Íbúðin er í göngufæri við leikskóla og grunnskólann í hverfinu. Stutt í náttúrufegurð og göngusvæði hjá nauthólsvík og kópavogshöfn.
Miðsvæðis og stutt í allar helstu þjónustur. Mjög barnvænt umhverfi með nýjum ungbarna og barna leikvelli ásamt sleðabrekku og fótboltavelli beint fyrir utan.
Allar innréttingar eru frá Brúnás, eldhústæki eru frá AEG og blöndunartæki frá Tengi.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því REMAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.