LÓB fasteignir kynnir í einkasölu eignina Borgarrimi 13c, Reykholti. Vel skipulögð endabúð í nýlega byggðu þriggja íbúða raðhúsi í Reykholti. Íbúðin er 104m2 að stærð með fjögur herbergi, þvottahús og baðherbergi. Eignin er fullbúin að innan og utan og er tilbúin til afhendingar við undirritun kaupsamnings. Möguleiki að fá hlutdeildarlán til þess að fjármagna kaup á þessari íbúð.
Um er að ræða 104m2 endaíbúð í 3 íbúða raðhúsi í Reykholti. Nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer F2534190 ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign F2534190, birt stærð 104m2. Eignin stendur á leigulóð.
Að utan er eignin klædd með grárri láréttri, viðhaldslausri, bárujárnsklæðningu og gluggalistum úr svörtu áli. Að innan er eignin fullbúin með gólfefnum og innréttingum frá Parka. Möl í bílaplani, meðfram gafli hússins að palli. Lóð er þökulögð og stór timburverönd fyrir aftan hús. Gólfefni er ljóst harðparket í öllum rýmum nema votrýmum en í þvottahúsi og baðherbergi eru gráar flísar á gólfi og gráar flísar í walk-in sturtuklefa á baðherbergi. Baðherbergisinnrétting með spegli frá Parka, walk-in sturta og upphengt salerni. Loftræsting í eigninni.
Að innan skiptist eignin í anddyri, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og eldhús og stofu í einu alrými. Útgegnt í garð úr stofunni. Fataskápar í svefnherbergjum og anddyri. Hljóðvistardúkur í lofti með innfelldri led lýsingu. Hiti í gólfi. Í eldhúsi er fullbúin eldhúsinnrétting frá Parka, með innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, ofni og spanhelluborði á eldhúseyju. Gert ráð fyrir sætum fyrir 3-4 við eldhúseyjuna.
*** Eignin er laus við kaupsamning *** *** Möguleiki á hlutdeildarláni ***

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.