Laugardagur 18. júlí
Fasteignaleitin
Opið hús:20. júlí kl 17:30-18:00
Skráð 17. júlí 2026

Háteigur 7

RaðhúsSuðurnes/Garður-250
107.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.900.000 kr.
Fermetraverð
620.019 kr./m2
Fasteignamat
37.100.000 kr.
Mynd af Sigurður Sigurbjörnsson
Sigurður Sigurbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Garður
Pallur
Heitur pottur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2537973
Landnúmer
215540
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Stál
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd út af stofu
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
M2 Fasteignasala kynnir í einkasölu - Glæsilegt nýtt endaraðhús við Háteig 7, 250 Garði, Suðurnesjabæ.

* Eignin er í göngufæri við grunnskólann og 3 mín frá nýjum leikskóla sem er á skipulagi  í þessu hverfi.
* Eldhúsinnrétting ásamt öllum eldhústækjum
* Hvítar yfirfeldar hurðar
* Sólpallur út frá stofu (Eftir að setja upp)
* 3 svefnherbergi 
* Rúmgott þvottahús með innréttingu ásamt geymslu
* Þýskt gæða harðparket á alrými og flísar á forstofu + baðherbergi og þvottahúsi.


Lýsing eignar:
Komið er inn í flísalagða forstofu, Innbyggðir skápar og flísar á gólfi.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og í sturtu. Stór sturtuklefi 100x120 með Hertu 10mm öryggisgleri, rúmgóð innrétting með vask ásamt upphengdu salerni og opnanlegum glugga.
Eldhúsið og stofan eru í opnu rými.
Eldhúsið er með L innréttingu ásamt ofni, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, örbylgjuofni og helluborði.
Stofan er opin og björt, útgengt verður á lokaðan suður sólpall.
Hjónaherbergið (3) er rúmgott með parket á gólfi og rúmgóðum fataskápum og skápalýsingu.
Þvottahús og geymsla er rúmgott.
Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara er í vinnuhæð.
Barnaherbergi  1 og 2 eru bæði parketlögð og með fataskápum.

Þetta eru virkilega vel skipulögð raðhúsa lengja með 4 íbúðum, steypt bílastæði með hitalögn er fyrir framan hús, baklóð tyrfð og afgirt verönd bakatil.

Eignin Háteigur 7 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 253-7973, birt stærð 107.9 fm, nánar tiltekið eign merkt 01-04, fastanúmer 253-7973 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða siggi@fermetri.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Sjá ýtarlegri skilalýsingu
Burðarvirki:
Sökklar, botnplata:               Staðsteypt járnbent steinsteypa
Útveggir:                                Timbur
 
Frágangur húss að utan:
Útveggir:
Húsið er timburhús reist á hefðbundinn hátt. Útveggir eru klæddir með álklæðningu.
Þak:
Þak er klætt með báru-Aluzink. Þakkantur (panelklæddur) málaður tvær umferðir í hvítum lit. Rennur eru utanáliggjandi (Lindab hvítar). Rennur og niðurföll eru tengd.
Gluggar og hurðir:
Gluggar eru gerðir úr ál/tré, opnanleg fög og með viðurkenndum stormjárnum við björgunarop. Gluggar eru hvítir að lit. Útihurðir eru einnig ál/tré, 3ja punkta með læsingabúnaði. Hurðir eru hvítar að lit. Gler er einangrunargler.
Lóð: Búið er að tyrfa lóðina

Rafmagn:
Innfeld ljós eru I andyrri,gangi,eldhúsi og stofu. Ljósum innanhús er hægt að stýra með Plejd appi, hægt að stilla á ýmsa vegu.

HEITUR POTTUR:
Ídráttarrör eru til staðar við sökkulvegg á bakhlið hússins. 
 
Útivatnskranar eru bæði að framanverðu og aftanverðu.
 
Frágangur húss að innan:
Gólf:
Gólfhiti er í öllu húsinu.
Stofa/eldhús, gangur, herbergi og geymsla  parketlögð með harðparketi.
Baðherbergi/þvottaherbergi og anddyri  flísalögð.
 
Veggir:
Útveggir eru einangraðir með steinull. Milliveggir milli íbúða eru 30cm þykkir tví-einangraðir með loftrúmi.
Léttir innveggir eru byggðir úr blikkstoðum ullaðir og klæddir beggja vegna með krossvið að innralagi fyrir hald og með gipsplötum ytra, bað-/þvottaherbergi er klætt með rakavörðum gipsplötum. Veggir eru sléttspartlaðir og málaðir í ljósum lit.
 
Innihurðir:
Þær eru sléttar í hvítum lit, með yfirfeldum hvítum körmum.
 
Innréttingar:
Eldhúsinnrétting:
Eldhúsinnrétting er með harðplastlagðri spónaplötu borðplötu. Helluborð með fjórum hellum, gufugleypir með kolasíu.
 
Allar innréttingar og fataskápar eru í sama lit.
 
Hreinlætistæki:
Bað-/þvottaherbergi:
Salerni, handlaug með einnar handar blöndunartækjum. Sturta flísalögð, hitastýrð blöndunartæki, sturtuhaus og handsturtuhaus á sturtu stöng.
Öll postulínstæki eru hvít að lit. Rafmagns- og vatnstengingar fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús :
Eldhúsvaskur. Einnar handa blöndunartæki fyrir eldhúsvask.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skógarbraut 924
Skoða eignina Skógarbraut 924
Skógarbraut 924
262 Reykjanesbær
124.6 m2
Fjölbýlishús
524
433 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Bárusker 7 D
Á einni hæð
Skoða eignina Bárusker 7 D
Bárusker 7 D
245 Sandgerði
86.7 m2
Raðhús
413
691 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Háteigur 6
Bílskúr
Skoða eignina Háteigur 6
Háteigur 6
230 Reykjanesbær
92.2 m2
Fjölbýlishús
21
591 þ.kr./m2
54.500.000 kr.
Skoða eignina Mávabraut 9
Efsta hæð
Skoða eignina Mávabraut 9
Mávabraut 9
230 Reykjanesbær
111.5 m2
Fjölbýlishús
423
537 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin