Hrá, ómáluð steinsteypa jafnt úti sem inni. Brútalismi með sterka skírskotun í íslenska torfbæinn — húsin liggja lágt í landinu og innbyggð steypt húsgögn eru hluti af rýminu.
Högna Sigurðardóttir (6. júlí 1929 – 10. febrúar 2017) var íslenskur arkitekt, fædd í Vestmannaeyjum. Hún varð fyrst Íslendinga til að nema við École nationale supérieure des Beaux-Arts í París (1949–1960) og fyrsta íslenska konan sem teiknaði hús á Íslandi. Högna starfrækti eigin teiknistofu í París en teiknaði um leið fá en áhrifamikil einbýlishús hér á landi á sjöunda og áttunda áratugnum, þar sem hrá, ómáluð steinsteypa og skírskotun í íslenska torfbæinn eru aðalsmerki. Þekktast verka hennar er Hafsteinshús að Bakkaflöt 1 í Garðabæ (1965–68), sem valið var eitt af 100 merkustu mannvirkjum 20. aldar í Norður- og Mið-Evrópu árið 2000 og er friðlýst að utan sem innan.