Eftirstríðsmódernisti. Hrein þrívíð form, uppbrotið rúmtak með hálfum hæðum og vandað efnisval þar sem steypa og timbur fá að njóta sín.
Gunnar Hansson (19. febrúar 1925 – 6. janúar 1989) var íslenskur arkitekt og einn helsti fulltrúi módernisma í íslenskri byggingarlist eftirstríðsáranna. Hann nam húsagerðarlist við Berkeley-háskóla í Kaliforníu 1944–1945 og síðar við Norges Tekniske Høgskole í Þrándheimi 1950–1953, starfaði hjá skipulagsdeild og húsameistara Reykjavíkur og opnaði eigin teiknistofu árið 1958. Meðal þekktustu verka hans eru Morgunblaðshöllin við Aðalstræti 6, kirkja Óháða safnaðarins við Háteigsveg, Hlemmur (sem hann hlaut fyrstu menningarverðlaun Dagblaðsins fyrir árið 1979), Umferðarmiðstöðin og skipulag Heimahverfis, auk fjölda íbúðarhúsa. Eigið hús hans að Sólheimum 5 (1957) og sumarhúsið Ísólfsskáli á Stokkseyri (1962) eru bæði friðlýst og Sólheimar 5 rataði í yfirlitsritið 100 Houses for 100 European Architects of the 20th Century.